Á Gautaborgarkvikmyndahátíðinni í næstu viku verður frumsýnd mjög áhugaverð íslensk heimildamynd, Garn, sem vonandi mun ná til landsins innan tíðar. Myndin er íslenskt/pólskt samstarfsverkefni en það er Una Lorenzen sem leikstýrir myndinni, Örn Eldjárn frumsemur tónlistina og Þórunn Hafstað klippir. Myndin fjallar um fjórar áhrifaríkar konur frá Póllandi, Japan, Svíþjóð og Íslandi sem nota hekl og prjón til að búa til ögrandi nútímalist, pólitískar yfirlýsingar, sirkusverk og framúrstefnulega leikvelli.
„Þó svo að garnið sé rauður þráður í myndinni þá er þetta fyrst og fremst saga um sterkar persónur og lífssýn þeirra. Myndin byrjar á Íslandi en ferðast svo um allan heim, meðal annars til Hawaii og New York,“ segir Una Lorenzen leikstjóri en þetta er hennar fyrsta kvikmynd í fullri lengd. „Hingað til hef ég eingöngu verið að gera hreyfimyndir en kynntist Heather Millard, framleiðanda myndarinnar, þegar ég gerði hreyfimyndir fyrir kvikmyndina Future of Hope. Ég kom inn sem leikstjóri seint í ferlinu en það var bæði skemmtilegt og lærdómsríkt að vinna þessa mynd með fámennum en þéttum hópi fagmanna.“
sjá trailer; á facebook-síðu Yarn the movie.

Yarn the Movie:
The post Ögrað með garni appeared first on Fréttatíminn.