Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Verkfæri trans barna til að takast á við heiminn

$
0
0

 

24830-myndasaga

Sophie Labelle er teiknimyndasagnahöfundur og trans aktífisti sem vakið hefur athygli í netheimum fyrir myndasögur sínar Assigned Male, eða Úthlutað karlkyn. Sophie er frá Quebec en er nú stödd hér á landi í boði Samtakanna ’78 og nýtir tækifærið til að þýða myndasögurnar á íslensku undir nafninu Skólaverkefnið. Við Sophie hittumst á Kaffivagninum á Granda, þangað sem hún tók strætó upp á eigin spýtur, þrátt fyrir að hafa aðeins verið hér í nokkra daga.

„Ég kann að meta þetta sífellda sólarlag á Íslandi,“ segir Sophie glöð í bragði þegar við setjumst niður með pönnuköku og uppáhellt kaffi. „Ég bjó í Júkon í Kanada í tvö ár og þar var alltaf svona dimmt eins og hér. Fólk var alltaf að tala um hvað skammdegið gerði það þunglynt en dimman kemur sköpunargáfunni minni á fulla ferð. Hún gerir mig hamingjusama.“

„Kynjamerkt salerni eru bara eitt af þeim fjölmörgu hlutum sem ýta undir þá tilfinningu trans fólks að við skiptum ekki máli.“

Aðspurð hvernig henni sýnist Ísland vera statt miðað við Quebec, þegar kemur að réttindum trans fólks, segir Sophie: „Það sem ég hef heyrt um hugðarefni trans fólks er til dæmis að hér sé bara einn sálfræðingur sem sér um alla trans einstaklinga og það séu einhverskonar mannanafnalög í gildi sem reynast trans einstaklingum til trafala.“ Hún er hins vegar hrifin af framtaki Akurskóla að taka kynjamerkingu af salernum skólans og segir slík skref skipta sköpum fyrir líðan trans barna.
„Trans og flæðigerva börn eru oft ósýnileg í skólanum, og þar höfum við ekki jafn mikið pláss og sís börn. Kynjamerkt salerni eru bara eitt af þeim fjölmörgu hlutum sem ýta undir þá tilfinningu trans fólks að við skiptum ekki máli. Framtak Akurskóla gerir okkur hins vegar sýnileg og staðfestir tilveru okkar.“

Eftir að myndasögur Sophie fóru að vekja athygli hefur henni verið boðið að heimsækja trans og femínísk samfélög um allan heim. Myndasögurnar Assigned Male fjalla um hressu trans krakkana Ciel og Stephie, og hvernig þau mæta heimi sem gerir ekki ráð fyrir þeim.
„Ég byrjaði að þróa persónurnar eftir að ég kenndi börnum í Quebec og tók eftir því hvað til var lítið af efni sem innihélt kynsegin börn, eins og mörg þeirra voru. Þegar þau báðu þau mig að teikna myndir fyrir þau að lita byrjaði ég því að lita trans krakka og koma inn í myndirnar skilaboðum um kynsegin fólk og krakka sem ekki vilja taka þátt í staðalmyndum kynjanna.“

Hún segir myndasögurnar þó ekki beint ætlaðar til fræðslu.„Ég vildi einfaldlega finna þessum börnum stað og fyrirmyndir í heiminum. Ég man að sem trans barn sat ég tímunum saman inni á bókasafni að leita að persónum í bókum sem líktust mér, með litlum árangri. Eins fór ég í gegnum sjónvarpsdagskrána í hverri einustu viku að leita að bíómynd þar sem ég gæti séð önnur börn sem samsömuðu sig ekki því kyni sem þeim var úthlutað. En slíkt efni var bara ekki til.“ Assigned Male sé því tilraun til að veita trans börnum stað í menningu samtímans. „Reyndar sé ég núna að ég hefði átt að nefna myndasögurnar „Tól gegn transfóbískum heimi,““ bætir hún við hugsi.

„Í hvert sinn sem talað er við trans fólk í fjölmiðlum getur það haft áhrif á trans barn sem hugsar: þarna er einhver eins og ég, ég má vera til.“

Myndasögurnar eru lifandi og fullar af húmor, en Sophie segist þó líta á sig sem meiri aktífista en teiknara.
Sjálf kom Sophie út úr skápnum þegar hún var þrettán ára, á sama aldri og aðalpersónur sögunnar. Hún segir söguna byggða að einhverju leyti á hennar eigin reynslu. „Ég var samt á þessum aldri fyrir fimmtán árum og umhverfið var allt annað fyrir trans fólk en nú. Ef ég sá trans manneskju í bíó var það undantekningalaust vondi kallinn í myndinni. Nú erum við sýnilegri hópur á fjölbreyttari sviðum.“
Hún segir trans fólki mikilvægt að eiga sér fyrirmyndir í stjörnuheiminum á borð við leikkonuna Laverne Cox, en sýnileiki trans fólks þurfi þó að vera miklu meiri.
Sýnileikanum fylgir þó oft áhætta og síðan Sophie fór að láta í sér heyra sem trans kona hefur hún orðið fyrir mikilli áreitni frá transfóbískum hópum og henni berast oft morðhótanir. Hún hefur samt ekki hug á að hætta að láta í sér heyra. „Í hvert sinn sem talað er við trans fólk í fjölmiðlum getur það haft áhrif á trans barn sem hugsar: þarna er einhver eins og ég, ég má vera til.“

Sophie situr ekki auðum höndum á meðan á Íslandsdvölinni stendur, en þegar við hittumst er hún nýbúin að tala á viðburði á vegum Samtakanna 78 og er að undirbúa útgáfu myndasagnanna á íslensku. Útgáfu Skólaverkefnisins verður fagnað þann 22.febrúar í húsi Samtakanna ’78. „Ég hef þau forréttindi að kynnast trans samfélögum hvers lands sem ég heimsæki. Eftir að ég kom til Íslands er ég nánast eingöngu búin að umgangast trans fólks, svo mér líður eins og allir á Íslandi séu trans!“

24830-sophie
Sophie Labelle segir skammdegið á Íslandi gera sig hamingjusama.

The post Verkfæri trans barna til að takast á við heiminn appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652