Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Magga Pála: Hægðir, frá lófataki yfir í leyndarmál

$
0
0

Kæra Margrét Pála.
Ég skrifa þér í vandræðum mínum vegna þess að ég treysti þér best á þessu landi til að gefa mér góð ráð. Þannig er að ég á nýlega orðið fjögurra ára barnabarn, þessi litla stúlka býr ásamt móður sinni í húsinu hjá okkur afa.

Vandræðin eru varðandi hægðir, hún pissar í klósettið og aldrei verða slys hvað það varðar. Málið er að hún ærist úr hræðslu ef að hún á að hafa hægðir í klósett og vill þá fá bleyju. Við erum búin að reyna allt en hún er alveg óviðráðanleg varðandi þetta mál. Hvað telur þú að sé best fyrir okkur að gera í þessu máli? Er þetta óalgengt vandamál? Mútur duga því miður ekki.

Heil og sæl, kæra amma og auðvitað mamma og afi. Litla stúlkan ykkar er lánsöm að eiga svo marga uppalendur hjá sér. Hjartans þakkir fyrir traustið og hlý orð og þakkir fyrir að opna þetta mikilvæga umræðuefni. Það gefur mér kærkomið tækifæri til að fjalla almennt um hægðir og hægðavanda barna, tabúið í umræðunni, áður en ég vík að spurningunni þinni. Almenna umfjöllunin er í lengri útgáfu á vefnum; frettatiminn.is en svörin til þín eru óstytt hér á eftir.

Lófatak og sköpun eða vandi og leyndarmál
Hægðavandi barna er mjög algengur enda er hægðastjórnun langvinnt ferli með misvísandi skilaboðum frá umhverfinu. Á fyrsta æviárinu fylgjumst við glöð með öllu sem barnið lætur frá sér og á öðru árinu fær barnið lófatak og húrrahróp ef eitthvað kemur í koppinn. Á þriðja og fjórða árinu fagnar enginn hægðunum sem eiga að fara ósýnilegar í klósettið og barnið fær óánægjusvip ef „slys“ verður. Á fimmta og sjötta ári eru hægðir, og hvað þá hægðavandi, einkamál og leyndarmál sem fáir ræða.

Viðkvæm og vandmeðfarin málefni
Börn eru ólík og viðkvæm gagnvart líkamlegum þörfum sínum, sérlega hringrás næringar og hægða og þurfa sinn tíma. Þið gætið án efa að góðri og trefjaríkri fæðu og eins er mikilvægt að hvetja hana til vatnsdrykkju því við búum við þann hönnunargalla að finna of seint fyrir þorsta. Allt þetta hjálpar fyrir reglulegar hægðir.

Stundum skapast hægðavandi af erfiðri reynslu eins og hægðatregðu eða harðlífi sem jafnvel er löngu gengið yfir – en óttinn við sársaukann situr eftir. Þá reyna þau stundum að halda í sér og þrálátur klíningur getur fylgt. Skömm yfir að hafa misst í buxurnar skapar líka vanlíðan og svo má lengi telja.

Hvað er til ráða?
Hjá fjögurra ára stúlku skiptir þó orsökin ekki máli ef allt er í lagi með hægðirnar. Mín tillaga er að þið nefnið ekki klósettið við hana því að fullorðinsklósett er stórt og ógnandi. Hægðir og þvaglát eru líka ólíkar aðgerðir, það er fljótlegt að pissa og hoppa niður en hægðalosun tekur lengri tíma. Það getur valdið órökréttum kvíða um að detta niður eða bíða eftir hjálp þegar hún er búin. Hægðalosun er auðveldust í öruggum aðstæðum og mörg börn fara í felur til að fá frið. Loks skiptir líkamsstellingin máli, mörg börn kjósa að standa, krjúpa eða sitja á hækjum sér.

Töfralausnin koppur
Hins vegar þarf að vinna með henni að breytingum og því ferli þurfið þið að gefa tíma. Hafið bleyjurnar innan seilingar þannig að hún viti að þær séu alltaf í boði og segið henni að þið séuð mjög sátt við hana. Fullvissið hana um að þið getið hjálpað henni til að hætta með bleyjuna þegar hún er tilbúin og að ekkert liggi á. Það er líka jákvætt að hún hafi svona góða stjórn á hægðunum og ekkert fari í buxurnar. Ræðið líka að mörg börn á hennar aldri noti kopp og hún eigi líka að fá kopp inni á salerni. Svo er klókt að fara saman og leyfa henni að velja kopp sem er góður hvati til að nota hann. Svo velur hún bara á milli bleyjunnar eða koppsins þegar hún þarf að hafa hægðir. Þessi lausn getur verið töfralausn fyrir hana sem smátt og smátt færir hana að því að ráða við klósettið.

Gangi ykkur allt í haginn og gaman væri að vita hvernig málin þróast hjá stúlkunni ykkar.

Hlýjar kveðjur, Magga Pála

The post Magga Pála: Hægðir, frá lófataki yfir í leyndarmál appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652