Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Kyrrlátt kvöld við Tálknafjörðinn – kvótinn fer og fólkið líka

$
0
0

Íbúum á Táknafirði hefur fækkað um 20 prósent eftir að fyrirtækið Þórsberg seldi kvótann úr byggðarlaginu til Suðurnesja. Eigandi Þórsbergs gæti gengið út úr rekstrinum með rúman milljarð á morgun án þess að þurfa nokkru sinni að þefa af fiski aftur.

„Hér er ekki ljótasta birtingarmyndin á kvótakerfinu,“ segir Indriði Indriðason, sveitarstjóri í Tálknafjarðarhreppi. „Við höfum séð það svartara um allt land. Þarna er einfaldlega maður sem stendur uppi með svo sem eina þokkalega trillu eftir langa annasama starfsævi.“
Eftir að hafa þurft á fjárhagslegri endurskipulagningu að halda eftir hrun og fengið átta hundruð milljónir afskrifaðar hjá Arion banka, er fyrirtækið Þórsberg, sem er að mestu í eigu Guðjóns Indriðasonar, framkvæmdastjóra og fjölskyldu hans, aftur bjargálna og vel það, eftir að hafa lokað fiskvinnslunni. „Ég þekki hinsvegar ekki nokkurn mann sem er ólíklegri en hann til að taka krónu úr þessari sölu,“ segir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar. „Þetta fólk er þekkt af því að berast ekki á, það á ekki fína bíla eða flott hús. Þetta er ósköp venjulegt fólk, ólíkt mörgum öðrum misjöfnum sauðum sem ég hef kynnst í þessum bransa. Aldrei í dýrum fötum eða keyrandi um á fínum bílum.“

Ævintýri og tröllasögur

Byggðastofnun á 23 prósent í fyrirtækinu. Það er þó ólíklegt að það sé hægt að selja þann hlut enda ræður eigandi meirihluta hlutafjárins í raun yfir fyrirtækinu. Byggðastofnun gæti því ekki selt kvóta eða tekið fé úr rekstrinum.
Það er þó Tálknafjarðarhreppur sem mestu tapar. Alls unnu um 60 manns hjá Þórsbergi, þegar mest var, þar af fimmtán manna áhöfn á línubátnum Kópi sem var seldur með fyrirtækinu og tólf hundruð tonna kvóta til Suðurnesja.
Tálknafjörður veltir um 300 milljónum. Kvótinn var rúmlega þriggja milljarða virði, Þótt bærinn hafi átt forkaupsrétt að kvótanum hefði það aldrei verið raunhæfur möguleiki. Rúm sextíu prósent af útsvarinu tapast hinsvegar og það setur strik í reikning bæjarins. Indriði Indriðason segir að það sé dauð hönd yfir landsbyggðinni vegna fækkunar þjónustustarfa. „Ég held að það hafi ekki verið minna áfall fyrir bæjarfélagið þegar Landsbankinn lokaði útibúinu sínu og Pósturinn lokaði hérna í bænum í fyrra. Það setur atvinnurekendum líka skorður þegar engin grunnþjónusta er til staðar.“
Aðalsteinn segir hinsvegar að það sé ekki boðlegt að núverandi kerfi bjóði hættunni heim. Það verði að fara að ræða pólitískar leiðir til að koma í veg fyrir að slík staða komi upp. Þótt menn vilji halda í kvótakerfið sé ekki þar með sagt að það sé heppileg staða að einstaklingar hafi örlög heilu byggðarlaganna í hendi sér. „Það fara auðvitað alltaf af stað ýmis ævintýri og ótrúlegar tröllasögur þegar svona gerist. Þótt veruleikinn sé kannski ekki alveg svona spennandi þá er alveg ljóst að varnirnar í núverandi kerfi halda ekki. hvað þetta varðar.“

Bara grátlegt

Í framtíðinni má gera ráð fyrir að sex manns geti starfað hjá Þórsbergi. Það eru ansi mikil viðbrigði. Íbúar á Tálknafirði eru nú um 260 talsins en voru rúmlega 300 fyrir söluna.
Stór hluti af andvirði kvótans var greiddur í krókakvóta og fyrirtækið er því ekki búið að leggja árar í bát. Ekki er hinsvegar reiknað með að nýr 23 tonna bátur Þórsbergs landi aflanum á Tálknafirði og fleiri hugsa sér til hreyfings. „Þetta er auðvitað mikið áfall fyrir byggðarlagið,“ segir Aðalsteinn. „Um tíma var helmingur allra starfa í bænum hjá Þórsbergi. Núna stendur vinnsluhúsið autt.“
„Það er ekkert annað en grátlegt, þegar menn selja lífsbjörgina frá okkur hinum,“ segir fyrrverandi verkamaður í fiskvinnsluhúsinu. „Þegar þeir selja og skella í lás, standa þeir uppi sem milljónamæringar en við hin erum atvinnulaus, í verðlausum húsum.“
Hann segir að verkafólkið hafi ekki fengið neitt staðfest fyrr en svona viku fyrir söluna. „Auðvitað var okkur búið að gruna þetta lengi. En það er ömurlegt að fá að heyra að maður eigi sjálfsagt aldrei eftir að fá vinnu í sínum heimabæ. Tálknafjörður verður sjálfsagt bara enn einn draugabærinn á Vestfjörðum.“

Úrelt fiskvinnslufólk

Indriði Indriðason segir hinsvegar enga hættu á því að Tálknafjörður verði draugabær. „Það er miklu frekar gullgrafarablær yfir Tálknafirði núna. Það er fjórföldun á eldisleyfum í fiskeldinu hér í botni fjarðarins og við væntum mikils af því. Og þótt kvóti hafi farið úr bæjarfélaginu, þá kom krókakvóti í staðinn. Það er verið að rótfiska. Fiskvinnslan lokaði að vísu, en það var ekki hægt að reka hana með þeim aflaheimildum sem voru til staðar. Fyrirtækið barðist í bökkum. Það má segja að fiskverkafólk sé orðið úrelt með nýjustu tækni. Það þarf sífellt færri hendur en það kostar mikið að koma upp slíkri verksmiðju með tilheyrandi vélbúnaði. Það borgar sig ekki nema ætlunin sé að vinna minnst fimmtán þúsund tonn. Það eru að verða breytingar á atvinnulífi staðarins og það tekur á meðan á því stendur.“

Þetta bara gekk ekki lengur

Bjarnveig Guðbrandsdóttir, skólafreyja við grunnskólann, segir að ástandið sé vissulega slæmt í bænum en enginn hafi grætt á breytingunni. „Fólkið sem á Þórsberg var einfaldlega komið upp að vegg. Þetta gekk ekki lengur. Þau neyddust til að selja. Við búum hérna öll saman í litlu þorpi og hér er enginn að berast neitt á. Öllum finnst þetta jafn leiðinlegt.“

Maður Bjarnveigar missti vinnuna sem stýrimaður á Kópnum, ásamt öðrum í fimmtán manna áhöfn, en starfar nú í Vestmanneyjum yfir vetrartímann, fjarri fjölskyldunni. „Við ætlum að láta árið líða áður en við ákveðum hvort við þurfum að flytja burt úr plássinu,“ segir Bjarnveig. Hún bendir á að hafa þurfi líka í huga að börnum hafi fækkað mikið og það geti haft áhrif á störf við grunnskólann.

Aðalsteinn Þorsteinsson segir að ástandið sé þó ekki jafn svart fyrir Tálknafjörð og það gæti virst við fyrstu sýn. „Fyrir ári síðan kom sama staða upp á Djúpavogi og fjöldi fólks fluttist frá bænum. Nýjustu tölur sýna hinsvegar að dæmið er að snúast við aftur. Fólk er að snúa aftur í bæinn til að starfa við fiskeldi og ferðaþjónustu,“ segir hann. Hann segist telja að sama staðan verði uppi á Tálknafirði. Þar sé fiskeldi í sókn og hugmyndir séu uppi um að nýta vinnsluhús Þórsbergs til að fullvinna lax.

 

The post Kyrrlátt kvöld við Tálknafjörðinn – kvótinn fer og fólkið líka appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652