Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Magga Pála: Erfitt að vera drengur…

$
0
0

„Ég er með lítinn, góðan og ljúfan dreng, 4,5 ára, sem er mjög skýr og duglegur strákur. Hann á erfitt með sig þegar hann er með öðrum börnum… sama hvort hann er heima að leika með einum strák, með frænkum sínum eða í leikskólanum. Hann aðlagast þeim ekki, vill stjórna og getur breyst í lítið skrímsli sem meiðir hina krakkana. Ég reyni að tala við hann en þá er eins og hann detti í annan gír, eins og þær segja í leikskólanum.

Hann meiðir líka litlu systur sína, sem er 19 mánaða, sem honum þykir rosalega vænt um en það er ekki eingöngu afbrýðisemi… var áður alveg eins í skapinu. Mig langar að taka í taumana núna þar sem eldri börnin mín virðast frekar félagsfælin en félagslynd. Hvernig get ég kennt honum að leika sér fallega og vera góður við vini sína.

Það er ekki alltaf auðvelt að vera drengur sem vill bara vera úti að hjóla eða í boltaleik en á að vera inni að föndra enda kann hann varla að teikna Óla prik ennþá“

Heil og sæl, kæra móðir og hjartans þakkir fyrir bréfið þitt.

Mér sýnist þú eiga öflugan strák sem glímir við vanda í samskiptum og hegðun bæði heima og heiman. Slíkt er ekkert einsdæmi fyrir fjögurra og hálfs árs strák, fæddan fremur seint í árinu sem vinnur ekki með honum. Að auki er kynjamunur þekktur á þessum aldri þar sem drengir eru seinni en stúlkur hvað varðar félagsþroska, fínhreyfingar og úthald og fleira. Því passa margir drengir ekki í box skólakerfisins þegar þeir kjósa hreyfingu og frelsi fremur en rólegheit í föndri og annarri handavinnu. Þar er ekki við drengina að sakast heldur box sem henta þeim ekki.

Hegðun – hvenær er vandi fyrir höndum?
En – drengurinn þinn er á mikilvægu aldursskeiði fyrir hegðunarmótun og tímabært að meta stöðuna. Stefnir hann í jákvæða þroskaátt eða stefnir hann í hegðunarvanda? Öll börn geta verið erfið en aðvörunarljós kvikna ef barn er mjög hvatvíst og ofsafengið, í miklum mótþróa og óhlýðni, meiðir aðra og skemmir hluti og heimtar stöðuga athygli. Þarna er hreinskiptið samtal við leikskólann best – eins og þú hefur gert. Miðlið áfram upplýsingum til að meta málin og skoðið líka hvort hægt sé að breyta aðstæðum, heima eða í leikskólanum, til að auðvelda honum lífið. Leikskólinn er líka fyrsti aðilinn til að meta með foreldrum hvort inngrip eins og sálfræðingsmat geti gagnast. Það er sjálfsagt að þiggja slíkt og engu að tapa. Greining er góð leið sem eykur skilning allra á þörfum barnsins og hjálpar með næstu skref.

Hann ræður ekki við sig
En það er að sjálfsagt herða uppeldisróðurinn. Mundu að samtöl og áminningarræður fara inn um annað eyrað og jafnfljótt út um hitt hjá börnum á þessum aldri og loforð um betri hegðun fýkur út í buskann. Samt vilja öll börn vera „góð“ eins og við segjum og þinn drengur er fullur vilja en vanmáttugur með eigin sjálfstjórn. Þess vegna gerir þú best með að taka stjórnina af honum áður en hann missir sig og klúðrar öllu saman – slíkt staðfestir bara að hann sé ómögulegur. Láttu honum ganga vel með að stýra og leiða hann í erfiðu aðstæðunum.

Hrós og nálægð
Hann þarf á því að halda að takast vel til og fá hrós og athygli frá þér og umhverfinu fyrir vikið. Til dæmis getur þú verið með þeim systkinum í leik til að geta hrósað honum oft og vel fyrir frábæra hegðun – en haldið þeim í sundur ef þú ert ekki í nágrenninu. Vertu líka nálægt þegar hann er með vin eða frænkur hjá sér og gríptu inn ef þú skynjar að eitthvað sé að fara illa. Hjálpaðu honum að finna dót sem hann vill leyfa öðrum að leika með eða dót sem virkar vel í samleik. Ef hann vill fremur vera einn, skaltu ekki gagnrýna hann fyrir það. Bæði börn og fullorðnir eru misfélagslynd og það er allt í lagi.

Margt smátt hjálpar
Svo eru það smáatriðin sem þú getur líka stjórnað. Hann þarf reglu og rútínu á heimilinu og kærleiksríka athygli þegar allt gengur vel. Hann þarf nægan svefn, hollan mat og breyting á mataræði hefur hjálpað mörgum börnum mikið. Hreyfing utandyra og bað fyrir svefninn hjálpar mörgum.

Þér dettur örugglega margt fleira í hug, kæra móðir og gangi þér og ykkur í fjölskyldunni allt í haginn. Þín Magga Pála

23704 Magga Pala 01463

The post Magga Pála: Erfitt að vera drengur… appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652