Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

HB Grandi: Einn milljarður til þjóðarinnar en þrír milljarðar til eigenda

$
0
0

Markaðsvirði hlutafjár HB Granda hækkaði um 13,3 milljarða í fyrra. Fyrirtækið skilaði 5,1 milljarði í hagnað og af honum ætla eigendurnir að greiða sér 3 milljarða í arð. Samanlagður hagur þeirra af arðgreiðslum og hækkun hlutabréfa er 16,3 milljarðar. 

Eigendur HB Granda ætla að borga sér 3.038 milljón krónur í arð í vor vegna góðrar afkomu fyrirtækisins í fyrra. Þá skilaði HB Grandi 5.133 milljón krónum í hreinan hagnað, um 17 prósent af veltu. Til samanburðar þá greiddi fyrirtækið um 1.057 milljónir króna í veiðigjöld á síðasta ári. Eigendurnir fá því í arðgreiðslur næstum þrisvar sinnum hærri upphæð en þeir borga til þjóðarinnar sem endurgjald fyrir auðlindina sem fyrirtækið nýtir.

Ef þetta dæmi er notað má segja að arðurinn af auðlindinni skiptist í grófum dráttum þannig að þjóðin fær 25 prósent en kvótakóngarnir 75 prósent.

Gróði vegna lág gengis krónu

En arðgreiðslurnar eru ekki eini mælikvarðinn á hag eigenda sjávarútvegsfyrirtækja. Í fyrra hækkaði markaðsvirði hlutabréfa í Granda úr 61,6 milljarði króna í 74,9 milljarða króna. Hækkunin nemur um 13,3 milljörðum króna.
Þessi mikla hækkun ræðst af nokkrum þáttum. Ódýr aðgangur að auðlindinni er vissulega einn þeirra, en núverandi stjórnvöld hafa lækkað veiðigjaldið á undanförnum árum og gefið sterklega í skyn að þau ætli sér alls ekki að hækka þau. Af öðrum ástæðum má nefna lækkun olíuverðs á heimsmarkaði, hóflegar launahækkanir á atvinnumarkaði, vísi að eignabólu vegna innilokunar fjár í fjármagnshöftum og fleiri slík atriði. En veigamesti þátturinn er lágt gengi íslensku krónunnar, sem hefur ekki aðeins dregið mikinn fjölda ferðamanna til landsins heldur skilað eigendum sjávarútvegsfyrirtækja gríðarlegum hagnaði. Það mætti því kalla stóran hluta af auknum hag kvótakónga gengishagnað, þeir njóta lækkunar gengis krónunnar á sama tíma og lækkunin skerðir hag meginþorra almennings vegna hækkunar á innfluttum vörum.

Fimm eiga mest

Stærstu hluthafar HB Granda eru fyrirtæki í eigi tveggja systkinahópa; Kristján og Birnu Loftsbarna og Kristínar, Sigríðar og Árna Vilhjálmsbarna. Hlutur þeirra í gegnum nokkur félög er um 39 prósent. Samanlagt munu þau því fá í sinn hlut 1.185 milljónir króna í arð. Hlutdeild þessara fimmmenninga í virðisaukningu hlutafjár HB Granda á síðasta ári er um 5.185 milljónir króna. Samanlagður arður og hækkun hlutafjár fimmmenninganna vegna ársins 2015 er því um 6.370 milljónir króna. Það er um 1.275 milljónir króna á mann, að því gefnu að hlutur fimmmenninganna sé jafn; rétt tæplega 3,5 milljón króna á dag.
Til samanburðar þá voru laun og launatengd gjöld HB Granda um 8.845 milljónir króna í fyrra. Af því má ætla að tæplega 7 milljarðar króna hafi verið laun.
Fimmmenningarnir í eigendahópnum högnuðust því sem nemur rúmum 90 prósent af öllum launagreiðslum til 920 starfsmanna HB Granda. Ef miðað er við allan eigendahópinn þá nam arður og hækkun hlutabréfa hans tvisvar sinnum hærri upphæð og einum þriðjungi betur en heildarlaun 920 starfsmanna.
Þannig skiptist arðurinn af auðlindinni milli starfsmanna og eigenda sjávarútvegsfyrirtækja.
Miðað við 2,1 milljarð króna í veiðigjöld og tekjuskatt til ríkisins, 7 milljarða króna til starfsmanna og 16,3 milljarða króna til eigenda má segja að af þessari köku hafi ríkið fengið 8 prósent, starfsmennirnir 28 prósent en eigendurnir 64 prósent eða næstum tvö þriðju. Ríkið og starfsfólkið skiptir með sér einum þriðjungi.

Mynd: Kristján Loftsson, stjórnarformaður HB Granda og einn af helstu eigendum fyrirtækisins, getur búist við að fá um 235 milljónir króna í arð ofan á þann rúma milljarð króna sem eign hans í Granda hækkaði í fyrra.

The post HB Grandi: Einn milljarður til þjóðarinnar en þrír milljarðar til eigenda appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652