Sæl vertu, kæra Magga Pála.
… Nú finnst mér svo mikið um að börn séu kölluð prinsessur og prinsar, flottust og snillingar.
Úpps – ég burðaðist ekki með svona hrós, en hafði samt á tilfinningunni að ég ætti að vera svo klár án þess að vita af hverju eða hvernig.
Er ekki nóg að segja bara Guðlaug Rós MÍN eða Halldór Logi MINN til að sýna umhyggju, kærleika og mikilvægi barnsins?
En takk innilega fyrir pistlana og svörin við spurningum frá okkur fjölskyldum, ég held að það sé mjög gott að hafa svona praktíska umræðu um uppeldi „alla daga“.
Kærar kveðjur og gangi þér allt í haginn.

Heil og sæl ævinlega, amma kær og það sem við, afar og ömmur, erum gott uppeldisafl nú um mundir þar sem ungir foreldrar eru oft önnum kafnir í vinnu, námi, tómstundum og öllu því sem umhverfið krefst af þeim – óháð því hvort börn eru í farteskinu eða ekki. Rannsóknir sýna að við, miðaldra fólkið með reynslu og þekkingu, erum bráðnauðsynleg í uppeldi barnabarna og einnig lykilfólkið í stuðningi við heimili uppkomnu barnanna okkar sem basla núna sjálf við tilveruna.
Prinsessur og prinsar
Þú nefnir þessa merku tilheigingu okkar tíma sem er að kenna börnin okkar við prinsa og prinsessur – nokkuð sem hefði þótt fáheyrt fyrir fáum árum þegar ævintýri um konungborin börn voru fjarlæg okkur í tíma og rúmi. Síðan færðist áherslan frá Mjallhvíti og prinsinum á hvíta hestinum yfir í markaðsframleiðslu í myndefni, leikföngum, fatnaði og grímubúningum – og þá selur þessi konungborna hugmynd grimmt. Upphafið má helst rekja til Disney-veldisins og svo rammt kveður að prinsa- og prinsessuhugmyndum þeirra að umrætt markaðsveldi hefur einkaleyfi á að framleiða barnaföt með prinsessu- og prinsamyndum í sjálfum Bandaríkjunum.
Veldissprotinn í ríki hjartans
Siðan er allt önnur hlið á málum þegar foreldrar velja barninu sínu öll þau fegurstu orð sem til greina koma til að lýsa gleði sinni og hamingju með litla krílið. Auðvitað er ekkert í heiminum betra og fegurra en lítið barn og nýbakaðir foreldrar eru flestir að skilja í fyrsta sinni hvílík gæfa og hvílík ást kemur inn í líf þeirra með barninu. Þess vegna má segja að lítil börn ráða veldissprotanum í ríki hjartans og eru þannig séð konung- og drottningarborin að sönnu. Hins vegar er ótrúlegt úrval af faguryrðum og kærleiksjátningum til á íslensku. „Þú ert yndið mitt yngsta og besta,“ – fangar frábærlega ást foreldris á litla barninu sínu og ástríkir foreldrar finna sínar fallegu tjáningarleiðir án aðstoðar Disneys.
Sjálfsdýrkun
Loks getur prinsa- og prinsessutal verið varasamt á tímum sem okkar þar sem sjálfsdýrkun ku hamla ungu fólki svo um munar. Þá er hreinlega varasamt að hamra á of miklu hrósi og skilaboðum um að barnið sé algjörlega einstakt. Það getur falið í sér að barnið þrói með sér hugmynd um að það sé „meira“ en önnur börn, með meiri rétt heldur en „hinir“ og sé betra heldur en „hinir“. Munum líka að prinsar og prinsessur eru í valdastöðum. Því munu ung börn vilja stjórna heimilinu sem miklu valdameiri einstaklingar heldur en foreldrar þeirra, auðmjúkir þegnarnir sem aldrei hafa borið kórónu. Þess vegna er ekki snjallt að ala börn upp sem prinsessur og prinsa sem hafa ekki einu sinni þurft að lúta konungs- og drottningarvaldi hvað þá að bíða eftir að erfa ríkið á fullorðinsárum.
Magga Pála gefur foreldrum ráð um uppeldi stúlkna og drengja milli 0 til 10 ára. Sendið Möggu Pálu línu á netfangið maggapala@frettatiminn.is
The post Magga Pála: Konungborin börn á Íslandi appeared first on Fréttatíminn.