Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna lýsti því yfir rétt í þessu að hún hyggist ekki bjóða sig fram til embættis forseta Íslands.
Facebook-færsla Katrínar:
Kæru vinir!
Fjölmargir hafa haft samband að undanförnu og hvatt mig til að bjóða mig fram sem forseta Íslands. Fólk sem ég þekki vel og fólk sem ég þekki ekkert, fólk hvaðanæva af landinu, fólk af öllum stéttum, konur og karlar, fólk á öllum aldri. Að sama skapi hafa birst kannanir þar sem einhverjir virtust telja mig heppilega í þetta embætti.
Af þessum sökum fannst mér ekki geta annað en hugleitt málið alvarlega í nokkra daga. Ég hef líka tekið eftir gagnrýni frá einstaka mönnum sem eru duglegir að tjá sig, virðast óttast framboð mitt meira en góðu hófi gegnir og ráða ekki almennilega við þá hugmynd að konur taki eigin ákvarðanir.
Það sem stendur hins vegar upp úr eru mörg góð orð frá stórum og fjölbreyttum hópi fólks sem ég ber virðingu fyrir og vil þakka hvatninguna.
Óháð þessum jákvæðu viðbrögðum en einnig algjörlega burtséð frá þeim neikvæðu hef ég hins vegar tekið þá ákvörðun að skipta ekki um skoðun. Ég mun ekki bjóða mig fram til embættis forseta Íslands að þessu sinni. Ég vona að kosningabarátta þeirra einstaklinga sem gefa kost á sér í þetta embætti verði málefnaleg og innihaldsrík og í þetta embætti veljist góður þjónn þjóðarinnar sem beiti sér fyrir mannréttindum og lýðræðisumbótum, vernd náttúru og umhverfis og stöðu íslenskrar tungu.
The post Katrín ætlar ekki að bjóða sig fram appeared first on Fréttatíminn.