Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Verurnar hans Sindra

$
0
0

Sindri Ploder teiknar kalla, skrímsli og hauskúpur alla daga. Teikningar hans hafa nú ratað á prjónateppi og á sýningu í Tékklandi.

Sindri Ploder er gott dæmi um að æfingin skapar meistarann. Hann teiknar nær stanslaust frá því hann vaknar á morgnana þangað til hann sofnar á kvöldin, við eldhúsborð sem uppi í rúmi. Verk Sindra vekja víða athygli þessa dagana. Auk þess að verk hans njóti sín í tékknesk-íslenskri uppsetningu á Skugga-Baldri Sjóns, hefur hönnuðurinn Mundi látið gera prjónateppi upp úr teikningum hans. Móðir Sindra segir hann ekki virðast velta nýfenginni velgengni mikið fyrir sér, heldur haldi hann framleiðslunni áfram eins og ekkert hafi í skorist.

Kallarnir hans Sindra

Sindri er ekki fyrir að taka leiðbeiningum um hvað skuli teikna, en vill helst teikna einhverskonar verur, skrímsli og hauskúpur. Það eru einmitt þessar fígúrur sem skreyta prjónateppi Munda. Mundi fékk teikningar Sindra sendar frá forsvarsmönnum Listar án landamæra og varð agndofa yfir þeim. „Hann á meiri heiður af myndverkinu en ég. Ég hef ekki hitt Sindra ennþá en hann virðist vera alveg magnaður.“

25405_sindri_ploder-3

Verk Sindra sýnd í Tékklandi

Sýning með verkum Sindra hangir nú uppi í leikhúsi Prag í Tékklandi, þar sem Skugga-Baldur var frumsýndur.
Sindri tók þátt í listasmiðju ungs fólks með Downs-heilkenni í aðdraganda uppsetningar á Skugga-Baldri og var í framhaldinu fenginn til liðs við sýninguna sem listrænn stjórnandi. Jón Sæmundur, listrænn stjórnandi sýningarinnar, eða Nonni í Nonnabúð, er sjálfur þekktur fyrir einkennandi hauskúpuverk sín og eiga þeir Sindri því hauskúpuáhugann sameiginlegan. „Sindri er svo einlægur og duglegur listamaður. Mig langar að vera með sýningu með verkum hans í galleríinu mínu í sumar, auk þess sem Sindri leikur í nýju tónlistarmyndbandi Dead Skeletons.“ Samstarf þeirra sé því hvergi nærri lokið. Um kallana sem Sindri teiknar segir Nonni: „Mér dettur helst í hug að skrímslamyndirnar hans séu skrímslið í honum.“ Skrímslið sem býr innra með flestum komi í það minnsta ekki fram í viðmóti Sindra, en auk listrænna hæfileika þykir Sindri einn sá allra ljúfasti að vinna með.

Sýning með prjónateppum Sindra og Munda var opnuð síðastliðinn miðvikudag á Hlemmi Square.

25405_sindri_ploder-1
Listamaðurinn Sindri Ploder. Myndir|RUT
12833449_10153907382964178_545848279_n
Hönnuðurinn Mundi með eitt prjónateppanna eftir hann og Sindra.
9ab5f064-b37d-45c2-ba0a-1b456b17f6f8
Sindri og Nonni í Nonnabúð undirbúa sýningu á Skugga-Baldri.

The post Verurnar hans Sindra appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652