Hópur eldri borgara á ekki rétt á fullum ellilífeyri vegna búsetu erlendis. Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður félags eldri borgara, bendir á að fleiri og fleiri innflytjendur séu að komast á ellilífeyrisaldur og margir Íslendingar á efri árum séu að snúa aftur heim eftir langa búsetu erlendis.
„Allir sem hafa búið í löndum Evrópu þurfa gilda pappíra frá fyrrverandi vinnustöðum, sem getur verið flókið ferli að grafa upp kannski 30 ár aftur í tímann. Þeir sem koma frá löndum utan evrópska efnahagssvæðisins fá einfaldlega ekki neitt metið,“ segir Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður félags eldri borgara
Fullur réttur til ellilífeyris á Íslandi miðast við 40 ára búsetu hérlendis. Örorkulífeyrir miðast við að hafa búið á Íslandi þremur árum áður en sótt er um. „Útlendingar sem hafa starfað hér í tvö ár en lenda síðan í örorku hafa engan rétt, Íslendingar fá skertan lífeyri eftir búsetu erlendis og foreldrar innflytjenda fá ekki krónu,“ segir Þórunn. Það hefur verið kallað eftir gögnum frá Alþingi yfir hversu stór hópur þetta er sem fellur utan kerfisins. „Það þarf að vekja athygli á þessum málum,“ bætir Þórunn við.
The post Hópur innflytjenda fær ekki ellilífeyri appeared first on Fréttatíminn.