Með hækkandi leiguverði og minnkandi framboði á húsnæði fyrir ungt fólk í startholum lífsins fjölgar þeim sem dvelja í hreiðrinu fram eftir aldri. Talið er að nærri helmingur ungs fólks á aldrinum 18-30 ára í Evrópu búi enn í foreldrahúsum. Hrafnhildur er 35 ára gömul, grunnskólakennari sem býr í kjallaranum hjá foreldrum sínum.
„Ég hef eiginlega alltaf búið heima. Ég bjó einu sinni á Stúdentagörðum í smá stund en námslánin nægðu ekki fyrir því svo ég flutti aftur heim.“ Hrafnhildur Þórólfsdóttir upplifir sig oft sem ungling í húsi foreldra sinna.
„Ég hringi í foreldra mína til að láta vita hvort ég kem í mat, og pabbi skutlar mér í vinnuna á hverjum degi. Bankar á svefnherbergishurðina og kallar: „Hrafnhildur mín, eigum við ekki að fara að koma?“ – ef ég er ekki komin fram á morgnana.“

Hún segir heimilislífið þó ólíkt frá því hún var unglingur: „Hver sér um sinn þvott sjálfur og ég kaupi sjálf í matinn, en fer ekki með debetkortið hennar mömmu út í búð.“
Hrafnhildur er umsjónarkennari í tíu ára bekk og er illfært að eiga fyrir útborgun í íbúð eða vera á leigumarkaði með sín laun. Hún reynir að halda þeirri staðreynd að hún býr hjá pabba og mömmu frá nemendum sínum.
„Fólk segir ég þurfi ekki að skammast mín fyrir að búa svona því það sé staða margra, en ég ræð ekki við það og býð fólki ekki í heimsókn vegna þess. Það er skrýtið að vera fullorðin en þurfa að spyrja mömmu og pabba hvort ég megi halda partí.“

Þuríður, móðir Hrafnhildar, segist njóta þess að hafa Hrafnhildi heima. „Þetta er meira eins og að búa með félaga en dóttur sinni. Ég var vön að búa í kommúnum þegar ég var ung, enda af 68 kynslóðinni.“ Hún sé því vön ýmsum búsetuformum. „Ég sé nú ekkert að því að fólk búi með foreldrum sínum, ætti maður ekki bara að búa með þeim sem maður vill?“
Hrafnhildur samsinnir móður sinni og segir margar góðar hliðar á sambúðinni.
„Það er dásamlegt að borða kvöldmat með fólki sem kann að meta það sem ég elda. Þau tímabil sem ég bjó ein nennti ég sjaldnast að elda fyrir sjálfa mig.“
Hrafnhildur sér ekki fyrir sér að hafa efni á eigin húsnæði í nánustu framtíð.
„Það væri ekki nema ég flytti út á land, gerðist kennari í Grímsey eða á Dalvík eða eitthvað. Systir mín er nýflutt úr kjallaranum með fjölskylduna, en þurfti lán frá mömmu og pabba til að kaupa sér íbúð. Þetta er bara staðan á húsnæðismarkaðnum í dag.“

The post Fullorðin í foreldrahúsum: Skrýtið að spyrja foreldrana hvort ég megi halda partí appeared first on Fréttatíminn.