Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Traffík hjá Macland eftir bardaga Gunnars Nelson

$
0
0

Þegar Gunnar Nelson keppir í útlöndum horfa svo margir á hann á ólöglegum netsíðum að nokkru síðar leita fjölmargir til viðgerðarverkstæðis Macland með bilaðar tölvur.

 

Á viðgerðarverkstæði verslunarinnar Macland eru menn orðnir vanir því að fá yfir sig holskeflu af biluðum tölvum eftir stóra íþróttaviðburði, svo sem bardaga Gunnars Nelson. Margir grípa til þess ráðs að horfa á slíka viðburði á ólöglegum netsíðum en á þeim poppa upp auglýsingar fyrir allskonar misjöfn forrit.

Ef fólki verður það á að smella á auglýsingarnar hlaðast gjarnan niður forrit sem geta valdið óskunda í tölvunni. Oft á tíðum er fólk lengi að uppgötva að það hefur hlaðið niður leiðinlegum forritum með þessum hætti, en skýrustu merkin um þau eru að „pop-up“ auglýsingar fara að dúkka upp þegar farið er inn á venjulegar netsíður, eins og fréttamiðla, í tölvunni. Eitt gott ráð við þessu er að hreinsa tölvuna með forritinu adwaremedic.com

The post Traffík hjá Macland eftir bardaga Gunnars Nelson appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652