-Sykurinn hefur mörg andlit, marga tugi raunar. Lestu innihaldslýsingar á því sem þú kaupir og mundu að agave er til dæmis bara sykur. Ef það er orð sem endar á -ose eða -ósi í innihaldslýsingunni er það nánast alveg pottþétt sykur. Flettu upp öllum mögulegum orðum á sykri og leggðu þau á minnið.
-Alls ekki drekka sykraða drykki og þar með talið hvers konar orkudrykki. Þeir taka meira af þér en þeir gefa.
-Kauptu ósykraðar vörur eftir fremsta megni. Ósætt súkkulaði, hnetusmjör, ávaxtasafa og svo framvegis.

-Mörg krydd hafa náttúrulega sætu. Grísk jógúrt með hnetum, ávöxtum og kanil er til að mynda ótrúlega góð. Vanilluextract eða fræ úr vanillustöng geta líka uppfyllt sykurþörfina.
-Í mjög mörgum pasta- og pítsusósum er sykur. Það tekur enga stund að gera eigin sósu með því að saxa 2 hvítlauksgeira og hálfan lauk og mýkja í olíu við meðalhita. Bæta svo einni dós af niðursoðnum tómötum við og krydda með pipar, salti, oregani, basílíku og tímían. Leyfa þessu að malla í dálitla stund og mauka með töfrasprota ef þið viljið enga stóra bita. Þetta er hægt að nota sem bæði pítsu- og pastasósu.
-Ef þú ert vegan, eða ert af öðrum ástæðum að sleppa mjólkurvörum, eru til margir aðrir valmöguleikar eins og möndlumjólk, hrísmjólk og sojamjólk. Stundum eru þessar vörur með viðbættum sykri, mundu að lesa vel aftan á umbúðir.
The post Minnkaðu sykurátið appeared first on Fréttatíminn.