Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Hresstu upp á garðhúsgögnin

$
0
0

Garðhúsgögnin eiga það til að missa sjarmann með árunum ef þau fá ekki sæmilegt viðhald. Þetta á sér í lagi við ef þau standa úti yfir veturinn. Með smá vinnu má hressa upp á þau og gera viðarhúsgögnin fín að nýju.

* Gott er að setja undirbreiðslu undir viðarhúsgögnin til að vernda svæði fyrir óæskilegum efnum.
* Við byrjum á að spreyja viðarhreinsi á allan viðarflötinn. Athugið að mismunandi efni geta verið með mislanga virkni. Lesið því allar leiðbeiningar vel áður en efnin eru notuð.
* Skrúbbum húsgögnin með stífum bursta og sköfum grámann í burtu.
* Skolum af með vatni, ef háþrýstidæla er til staðar er fínt að notast við hana.
* Látum viðinn þorna vel.
* Slípum létt yfir með sandpappír.
* Setjum undirbreiðslu undir til að verja pallinn fyrir viðarolíunni.
* Tökum viðarolíuna og berum hana á með pensli eða svampi.
* Þurrkum umframolíuna af borðinu með tusku eða bómullarklút.

Heimild: Byko.is.

The post Hresstu upp á garðhúsgögnin appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652