Það hefur aldrei verið lognmolla í kringum þau Boga Jónsson og Narumon Sawangjaitham. Ævintýri þeirra spanna kínarúlluvagn, spanuddstofu og tælenskt „take away“, en nú bjóða þau upp á pad thai og karíókí í tveggja hæða strætó.
„Ég hélt þetta væri eitthvert Harlem-rassgat þegar ég var að spá í að flytja hingað, en svo er þetta bara svona fallegur staður,“ segir Bogi Jónsson þegar hann tekur á móti okkur á lóð sinni í Garði á Suðurnesjum. Þar býr hann með konu sinni, Narumon Sawangjaitham, sem er kölluð Nok.
Bogi hefur verið viðloðandi ýmsa vitleysu í gegnum árin, eins og hann segir sjálfur, en fyrstu viðskiptahugmyndinni hratt hann í framkvæmd þegar hann lagði áfengið á hilluna um miðjan níunda áratuginn. „Ég varð nefnilega svo feiminn við edrúmennskuna að ég ákvað að gera eitthvað sem ég þyrði alls ekki og ég opnaði kínarúlluvagninn Bogarúllur á Lækjartorgi, mitt í mannlífinu.“
Á þeim tíma voru engir staðir opnir eftir miðnætti, utan eins pylsuvagns og bílalúgu. Bogi sá því gott viðskiptatækifæri í að vera eini kínarúllusalinn. Kínarúlluvagninn varð fljótlega ómissandi hluti af næturlífi Reykjavíkur. Djammarar gæddu sér á kínarúllum, sósu og salati eftir að skemmtistaðir lokuðu, auk þess sem Bogi seldi smokka, löngu áður en getnaðarvarnir fengust í smásölu á nóttunni.

Töluðu bullmál sín á milli
Þrátt fyrir velgengni vagnsins langaði Boga að skoða heiminn og hélt því til Tælands þar sem hann kynntist konu sinni til 27 ára. „Ég var ekkert á höttunum eftir hjónabandi, en það var samt það sem ég fann í Tælandi.“
Bogi og Nok urðu ástfangin við fyrstu sýn og Nok flutti til Íslands með syni sína tvo. Þeir reka nú báðir veitingahús, annar núðlusúpustaðinn Noodle Station í miðbænum og hinn kaffihúsið NP Kaffi í Garðabæ. Hjónin eiga svo saman tvítugan son.
„Það var horft á eftir okkur, enda svo fáir útlendingar hér á landi á þessum tíma,“ segir Bogi um komu Nok til landsins árið 1989. Þá talaði hvorugt hjónanna móðurmál hins vel og fyrir vikið þróuðu þau með sér bullmál úr ensku, íslensku og tælensku. Bullmálið hentaði þeim vel en vakti furðu Íslendinga sem heyrðu þau tala í stórmörkuðum landsins.

Brátt kom upp sú hugmynd að opna tælenskan veitingastað og hjónin stofnuðu Thailand. „Hér voru einhverjir austurlenskir staðir, en allir voðalega fínir. Mér fannst vanta austurlenskt Múlakaffi.“
Nok sýnir okkur veggspjald sem hún fékk þekkta gesti staðarins til að árita og þar má finna alls kyns nöfn, allt frá Árna Johnsen til Bjarkar.
Bónussvínið hrekkt
Bogi opnaði svo austurlenskt vöruhús til að geta flutt inn meira hráefni í austurlenskan mat og stuðaði þá helsta fjármálagúrú landsins: „Ég bjó til vörumerki sem var bleikur fíll á gulum grunni. Ég setti fílinn upp á risastórt veggskilti og kortéri seinna var Jón Ásgeir mættur inn á gólf vöruhússins, brjálaður yfir líkindunum við Bónussvínið,“ segir Bogi hlæjandi, enda alltaf haft gaman af því að stuða „meirimáttar“, eins og hann kallar það.

Brann út við gjaldþrot
Fyrir nokkrum árum ráku Bogi og Nok einnig kaffihús á Álftanesi en það æxlaðist þannig að Bogi fékk augastað á eyðitanga þar sem var hvorki rafmagn né vatn og bað hreppstjóra Álftaness að fá að byggja hjónunum heimili. Þar ráku þau veitingastaðinn Gullna hliðið um skeið en í hruninu misstu þau hann í skuldir og Bogi lýsti sig gjaldþrota.
„Ég brann alveg út eftir gjaldþrotið. Varð eins og gullfiskur, mundi ekkert og gerði ekkert. En konan og strákarnir björguðu mér alveg, ég var hættur að geta unnið.“ Í framhaldinu ákváðu hjónin að byrja upp á nýtt, og keyptu litla lóð í Garði og gerðu upp húsið sem þau búa í nú. Fljótlega eftir að þau fluttu þangað fór Bogi að velta fyrir sér hvernig hann gæti komið sér aftur á lappirnar, en ákvað að fara sér hægar í þetta skipti.

Löggan lokar á þarabaðið
Hann kom upp þarabaði í bílskúrnum og seldi að því aðgang, en hann hafði reynslu af rekstri slíks baðs frá Álftanesinu. Fljótlega var þó lögreglan mætt til að loka baðinu vegna leyfisleysis baðsins, en Bogi dó ekki ráðalus. „Ég fór þá að selja venjulega steina af bílaplaninu hjá mér og fyrir hvern keyptan stein fékk maður aðgang að baðinu og það mátti alveg.“ Þessi aðferð var þó ekki langtímalausn svo Bogi hætti með þarabaðið.
Fyrir tveimur árum keypti Nok svo tveggja hæða rauðan strætó, svipaðan þeim sem keyra um stræti Lundúna. Þau langaði til að stofna óhefðbundinn veitingastað í vagninum, elda pad thai og syngja í karíókí.
„Heilbrigðiseftirlitið gaf ekki leyfi fyrir staðnum, fyrst vegna skorts á starfsmannaklósetti, svo ég ætlaði að redda því en þá sögðu þau lofthæðina of lága fyrir veitingastað. Svo virðist sem þau vilji ekki gefa leyfi,“ segir Bogi, langþreyttur á karpi um reglugerðir og formsatriði. Allar þessar neitanir segir Bogi svo lýjandi að hann hafi um tíma misst trúna á að byggja upp rekstur í strætónum.

Trúfélag sem rekur strætó
Þegar Bogi fékk starfsendurhæfingu hjá Virk vaknaði framkvæmdagleðin á ný.
„Ég fór að lesa lög og komst að glufu í kerfinu þess efnis að trúfélög, kvenfélög og íþróttafélög hafa heimild til að vera með smáræðisrekstur, svo lengi sem reksturinn er ekki auglýstur, opnunartíminn óreglulegur og enginn hagnaður af honum.“
Bogi stofnaði rakleiðis trúfélagið Friðarkúluna utan um reksturinn. Trúfélagið telur aðeins tvo félaga: Boga og Nok. Í rauða strætónum er nú boðið upp á Pad Thai, vöfflur, kaffi og karókí fyrir heppna gesti sem koma þegar trúfélagið Friðarkúlan nennir að hafa opið.
„Reglurnar eru svo þannig að verði gróði á rekstrinum má aðeins nota hann í hópferðir trúfélagsins. Svo ef við græðum skellum við Nok okkur bara í skemmtiferð,“ segir Bogi brosandi.

Ýmislegt er á döfinni hjá þessum orkumiklu hjónum. Nok undirbýr nú markað í bílskúr sínum sem hún vonast til að hafa opinn alla virka daga í sumar, en nú stendur hún vaktina allar helgar með bás í Kolaportinu. Bogi er hins vegar að sækja um að vera með matarbás á Hlemmi þegar matartorgið opnar í haust: „Mig langar að vera með þverskorna ýsu,“ segir Bogi brosandi. „Með kartöflum og smjöri, mín kynslóð myndi fyllast nostalgíu og túristar myndu upplifa alvöru íslenskan mat.“
The post Fundu glufu í kerfinu – stofnuðu trúfélag appeared first on Fréttatíminn.