Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Forsvarsmenn Brotafls og Kraftbindinga í gæsluvarðhaldi

$
0
0

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is

Mennirnir í miðju rannsóknarinnar eru tengdir fjölskylduböndum.

Lögreglan rannsakar nú hvort verktakar sem sitja í gæsluvarðhaldi vegna stórfelldra auðgunarbrota hafi gerst sekir um mansal. Lögreglumenn voru slegnir þegar þeir sáu hvar sumir verkamennirnir frá Austur-Evrópu bjuggu en sumstaðar voru aðstæðurnar nöturlegar, raflagnir í ólagi sem og hiti og salernisaðstaða.

Rassía skattrannsóknarstjóra og lögreglu til að uppræta stórfellda brotastarfsemi fimm byggingarverktaka er skýrt dæmi um að skipulagðir glæpir hafi haslað sér völl í hefðbundinni atvinnustarfsemi. Tvö fyrirtæki eru í miðju rannsóknarinnar, fyrirtækið Brotafl og Kraftbindingar. Bæði fyrirtækin hafa verið áberandi í framkvæmdum í borginni.

Níu voru handteknir á þriðjudag. Hald var lagt á peninga og bókhald í húsleitum á ellefu stöðum á suðvesturhorninu. Alls sitja fimm manns í gæsluvarðhaldi fram á þriðjudagskvöld vegna rannsóknar á stórfelldum skattalaga- og bókhaldsbrotum. Meðal þess sem er til rannsóknar er peningaþvætti sem stundað var til að koma ávinningi af brotastarfseminni í umferð.

Sigurjón G. Halldórsson, eigandi Brotafls, var einn af forsvarsmönnum SR-verktaka en fyrirtækið fékk áminningu frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur árið 2006 eftir að upp komst að tíu pólskir starfsmenn þess hafi verið látnir rífa klæðningu með asbest-eiturefnum, án þess að vera með grímur eða hlífðarbúnað.

Hann hefur áður komist í kast við lögin og var árið 2010 dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir skattalagabrot. Sigurjón var einn af þeim sem grunaðir voru um aðild að mansalsmáli sem upp kom á Suðurnesjum árið 2010. Sigurjón sat í gæsluvarðhaldi á meðan rannsókn málsins stóð en hlaut ekki dóm fyrir.

Fyrirtæki hans, Brotafl, hefur átt í langvarandi deilum við íbúa við Grettisgötu þar sem fyrirtækið hefur séð um framkvæmdir við byggingu hótels. Kvörtunum hefur rignt yfir lögreglu frá íbúum vegna hávaðasamra framkvæmda eftir löglegan vinnutíma og komið hefur til handalögmála. Lögreglan hefur nokkrum sinnum þurft að skerast í leikinn og stöðva vinnuvélar fyrirtækisins.

Róbert Páll Lárusson, framkvæmdastjóri Kraftbindinga, tengist Sigurjóni fjölskylduböndum. Fjallað var um hann í þættinum Brestum á Stöð 2 fyrir tveimur árum. Sýnt var frá iðnaðarhúsnæði í hans eigu þar sem íbúar töldu verulega okrað á sér.

The post Forsvarsmenn Brotafls og Kraftbindinga í gæsluvarðhaldi appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652