Þau Ólafur, Humera og sonur þeirra Faisal eru lítil fjölskylda í Vesturbænum sem talar þrjú tungumál sín á milli: Úrdú, íslensku og ensku.
„Ég er lélegastur á úrdú og Humera á íslensku, en Faisal er jafnfær á öllum þremur tungumálum. Svo tökum við það besta úr öllum kúltúrum í klæðaburði eins og þú sérð,“ segir Ólafur glettinn.
Humera hefur borið út blöð á morgnana í átta ár, og bera hjónin yfirleitt út saman. Dæmigerð morgunstund hjá þeim hefst því klukkan fimm á morgnana, þegar Ólafur og Humera fá sér te áður en þau halda út í hverfið með blöðin.

Sjá fleiri morgunstundir:
Morgunstundin – „Þetta er eins og lítil fjölskylda“

Morgunstundin – Vegan-boltinn er farinn að rúlla

Morgunstundin – Skipti reykingunum út fyrir Lýsi


Morgunstundin – Í Bólstaðarhlíðinni

The post Morgunstundin: Taka það besta úr öllum kúltúrum appeared first on Fréttatíminn.