Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Kylie Lip Kit – Ættirðu að trúa hæpinu?

$
0
0
26085 Kylie Jenner

Þrátt fyrir ungan aldur er hin 18 ára Kylie Jenner naskari en margur í viðskiptum. 58 milljónir manna fylgja Kylie á Instagram og áður en hún setti eigin varaliti á markað brást ekki að sæist Kylie kaupa varalit seldist sá varalitur upp í búðum á mettíma. Hún sá því að eigin varalitalína myndi falla aðdáendum sínum vel í geð. Frá því Kylie setti fyrsta lager af varalitum og varablýöntum í sölu á vefsíðunni Kyliecosmetics.com hefur hver sending selst upp á örfáum mínútum. Varalitasettin telja nú 16 varalita- og glossliti, hvert öðru vinsælla. En ber að þakka vinsældir varalitanna gæðum þeirra eða góðri markaðssetningu?

26085

Ásdís María Viðarsdóttir. söngkona:
Á sama tíma og Kylie Lip Kit eru allt sem ég vonaðist eftir og áferðin og litirnir á þeim eru gallalausir, veit ég alveg að það eru til betri og ódýrari varalitir. Ég get alveg viðurkennt að 30% af ást minni á Kylie Lip Kit eru hversu eftirsóttir þeir eru og hversu fáir eiga svona liti. Kylie er „trendsetter“ þegar kemur að varalit og manni líður svolítið eins og maður fái hlutdeild í hennar dýrð með því að eiga Kylie Lip Kit.

image2
Ásdís María með Candy K litinn frá Kylie.

Hrafnhildur Kjartansdóttir, nemi:
Ég nota mína tvo liti örugglega þrisvar til fjórum sinnum í viku og finnst þeir frábærir. Þeir endast mjög vel, ég setti hann til dæmis á mig í morgun og þurfti ekki að endurnýja hann fyrr en seinnipartinn. Ég á örugglega sex mismunandi merki af varalitum og þessir eru langbestir.
Hrafnhildur með Candy K litinn frá Kylie.

image1
Hrafnhildur með Candy K litinn frá Kylie.

Berglind Pétursdóttir, dansari og textasmiður:
Ég keypti eina litinn sem ég náði, þó hann væri alltof dökkur fyrir mig og ég hefði valið annan lit hefði ég getað. Það eru samt mikil gæði í þessum varalit, hann er betri en flestir aðrir svona varalitir sem ég hef prófað. Nú er ég samt að bíða eftir að geta komist yfir Metallics-lit hjá Kylie.

26085-berglind
Berglind með dökka litinn.

 

The post Kylie Lip Kit – Ættirðu að trúa hæpinu? appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652