Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Sigmundur Davíð hefur engu að tapa en Framsóknarflokkurinn öllu

$
0
0

Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, segir erfitt að skilja afhverju Framsóknarflokkurinn vilji leyfa Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni að leiða flokkinn í kosningum með tilliti til hagsmuna flokksins. Hann muni laða að sér neikvæða athygli eins og segull og eyðileggja fyrir heildinni. Grétar Þór Eyþórsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, segir að framsóknarmenn hljóti að velta fyrir sér hvaða áhrif þetta hafi á flokkinn.

Grétar Þór Eyþórsson segir mörgum spurningum ósvarað um yfirlýsingar formanns Framsóknarflokksins um áframhaldandi þátttöku í stjórnmálum. Það þurfi til dæmis að liggja fyrir hvort hann ætli að snúa aftur í forsætisráðuneytið? Hvaða áhrif það hafi á skipan ríkisstjórnarinnar fram að kosningum? Þá sé ljóst að hann hafi tapað mörgum stuðningsmönnum í Norðausturkjördæmi þar sem áhrifamenn hafi snúist gegn honum. Það sé spurning hvort hann þurfi ekki að finna sér annað kjördæmi. Það sé þó rétt að hafa í huga að sú aðferð að kjósa á lista á kjördæmisþingi en ekki í prófkjöri eða forvali gæti haft áhrif. Kjördæmisfélögin hafi ekki alltaf sent fulltrúa upp í allan kvótann en það gæti breyst núna, ekki síst ef það verður slagur milli Höskuldar Þórhallssonar og Sigmundar.

Gunnar Helgi segir að Sigmundur hafi engu að tapa, gefi hann kost á sér að nýju til Alþingis. Hann geti þá reynt að verja sig þótt líklegt sé að hann komi ekki glæsilega frá kosningunni. „Hann virðist eiga stuðning í flokknum en það er erfitt að átta sig á því hversu víðtækur hann er,“ segir Grétar Þór. „Kjósendur eru hinsvegar ekki jafn hrifnir. Framsóknarmenn hljóta að velta því fyrir sér hvað komi flokknum best,“ segir hann.

Kjósendur eru fljótir að gleyma

Gunnar Helgi bendir hinsvegar á að það hafi verið mikil ánægja með Sigmund Davíð lengi vel í flokknum. Hann hafi verið kraftmikill leiðtogi og tekið við flokknum eftir langvinna forystukreppu. „Það kann að skýra þessa miklu foringjahollustu þar innandyra.“

Framsóknarflokkurinn hefur verið mjög tvístígandi þegar kemur að því að kjósa í haust,. Flestir þingmenn virðast því mótfallnir enda flokkurinn mjög laskaður eftir Panama-skjölin. Gunnar Helgi segir þó ekki hægt að útiloka neitt þótt skammt sé til kosninga. „Framsóknarflokkurinn hefur verið að mælast talsvert undir 10 prósentum en fylgi hans hefur legið á bilinu 10 til 15. Þetta er mjög gamall flokkur og hann deyr ekki svo glatt þótt þetta sé ekki góð aðkoma. Flokkurinn er vanur að dúndra sprengju inn í kosningabaráttuna, stórum loforðum, það getur vel verið að þeim takist það núna. Kjósendur eru fljótir að gleyma,“ segir Gunnar Helgi. Hann segir að veikleiki stjórnmálafræðinnar sé að hún geti bara spáð fyrir um það venjulega. Atburðarásin hafi verið mjög óvenjuleg fram það þessu.

Deilt um hvort Sigmundur þurfi nýtt umboð

Flokksþing Framsóknarflokksins verður að óbreyttu haldið á næsta ári en haustfundur miðstjórnarinnar tekur ákvörðun um að boða til flokksþings sem fer fram á fyrri hluta ársins, samkvæmt lögum flokksins. Ekkert liggur því fyrir um að forysta flokksins þurfi að endurnýja umboð sitt fyrir kosningar samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu flokksins. Engin ályktun um að flýta þinginu var samþykkt á miðstjórnarfundi um síðustu helgi.

„Lög Framsóknarflokksins gera ráð fyrir að haustfundur miðstjórnar boði til flokksþings og „skal það að jafnaði haldið fyrri hluta árs“ eins og segir orðrétt. Með öðrum orðum: það er ekkert sem bannar að halda flokksins á öðrum tíma,“ segir Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sem er eindreginn talsmaður þess að flýta eigi flokksþingi til að forysta flokksins geti endurnýjað umboð sitt. Hann segist hissa ef skrifstofa flokksins ætli að túlka lögin með þeim hætti að ekki sé hægt að flýta flokksþinginu.

„Lögin gera beinlínis ráð fyrir því að sú staða geti komið upp að halda þurfi flokksþing á öðrum tíma ársins. Það eru einnig til fordæmi fyrir því að slíkt hafi verið gert þótt síðustu atburðir í sögu flokksins í kjölfar leka Panamaskjalanna og afsagnar forsætisráðherra séu hreint einsdæmi í 100 ára sögu Framsóknarflokksins. Ég tel að það sé full ástæða til að boða til flokksþings áður en kosið verður á ný til Alþingis í haust, eins og starfandi forsætisráðherra og samstarfsflokkurinn hafa tekið af skarið um að verði gert. Við störfum í umboði grasrótarinnar í flokknum og það er hún sem verður að veita okkur sitt veganesti fyrir baráttuna framundan. Það er ekki hlutverk okkar í forystu flokksins að taka slíka ákvörðun ein og sér,” segir Höskuldur Þórhallsson.

The post Sigmundur Davíð hefur engu að tapa en Framsóknarflokkurinn öllu appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652