Þrjár baráttukonur framtíðarinnar ræða hrútskýringar, jafnrétti og að fara út fyrir þægindarammann.
Þær Elín Kara, Gígja og Kristbjörg Arna eru nýútskrifaðar úr Hagaskóla og verja sumardögum sínum í Vinnuskólanum við að reyta arfa áður en þær byrja í menntaskóla í haust.
Elín Kara kannast við hrútskýringa-hugtakið úr myndböndum um „mansplaining“ á netinu en hinar tvær ekki. „Það er þegar menn tala yfir konur eins og þeir viti betur en þær,“ segir Elín, og hinar stelpurnar tvær kinka strax kolli þegar þær heyra skilgreininguna á hugtakinu.
Þær segjast allar oft lenda í eða verða vitni að hrútskýringum í skólanum frá jafnöldrum sínum, allt frá því þær byrjuðu í grunnskóla:
„Það er oft þannig að maður er að segja eitthvað en þá grípur strákur fram í og útskýrir það sem maður var að segja áður en maður nær að klára setninguna sjálfur,“ segir Gígja.
„Eða þeir reyna að láta okkur hljóma eins og við séum heimskari og nota setningar eins og „Nei,nei stelpur þetta er ekki svona sko…““ bætir Elín við.

Í Hagaskóla er femínistafélag auk þess sem nemendur skólans vöktu athygli með siguratriði sínu í Skrekk, Elsku Stelpur, sem fjallaði um undirokun stelpna í samfélaginu. Stelpurnar segja jafnréttisumræðu hafa aukist mikið hjá þeirra kynslóð en það séu helst þær sjálfar sem séu orðnar meðvitaðri, ekki þeir fullorðnu eða karlkyns jafnaldrar þeirra:
„Strákarnir gera margir enn grín að femínisma en stelpurnar standa allavega saman,“ segja þær.
Kristbjörg segir jafnframt oft frekar hlustað á stráka en stelpur í skólanum.
„Ef það er til dæmis karlkyns kennari eru strákarnir stilltari en í tímum þar sem kennarinn er kvenkyns.“
Stelpurnar telja að mismunurinn hafi þau áhrif að stelpur þori síður að trana sér fram á ákveðnum sviðum eins og í nemendaráð eða annað í skólanum: „Ef það á til dæmis að bjóða sig fram til vera með uppistand eða skemmtiatriði er maður svo oft búinn að heyra að stelpur séu ekki fyndnar að maður þorir ekki að bjóða sig fram, jafnvel þótt maður hefði áhuga á því,“ segir Gígja. Elín tekur undir: „Við heyrum sífellt að stelpur séu alvarlegar en strákar séu fyndnir og kærulausir. Þess vegna fá þeir að láta eins og jólasveinar á meðan við erum skammaðar ef við höfum jafn hátt.“
Hvað varðar jafnrétti kynjanna segjast stelpurnar þrjár tvímælalaust vera femínistar.
„Á yfirborðinu virðist vera jafnrétti en í raun er það ekki alveg svoleiðis,“ útskýrir Kristbjörg, og aðspurðar hvað hægt sé að gera til að stuðla að jafnrétti segir Gígja: „Maður þarf að fara út fyrir þægindarammann og benda á þetta til að geta breytt einhverju.“
Meira úr umfjöllun Fréttatímans um hrútskýringar:
Snýst um að brjóta minnimáttar niður

Konur deila sögum af hrútskýringum

Nokkur þekkt dæmi um mansplaining

Bylgja Babýlons um mansplaining: „Ég má alveg tala við þig sko!“
The post Hrútskýringar: Strákarnir gera grín að femínisma en stelpurnar standa saman appeared first on Fréttatíminn.