Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Kaffibarinn: „Ef þið rífið eitt plakat þá setjum við upp tíu“

$
0
0

„Ég var svo reiður því skilaboðin eru svo falleg,“ segir Richard Allen, annar vaktstjóra Kaffibarsins, en um síðustu helgi tóku starfsmenn staðarins eftir því að veggspjald á vegum Druslugöngunnar hafði verið rifið niður af karlaklósetti barsins, sem er í miðborg Reykjavíkur. Á veggspjaldinu var að finna skilaboð til gesta staðarins um rétt hvers og eins til að skemmta sér án þess að verða fyrir kynbundnu ofbeldi. Starfsmenn Kaffibarsins og aðstandendur göngunnar voru fljótir að bregðast við og hafa veggir þar verið veggfóðraðir, bæði á klósettum og framan við þau.
„Þetta gerðist í kringum 17. júní en ég var vaktstjóri þá helgi. Var að fara á innri barinn þegar ég fann plakat á gólfinu. Fattaði ekki alveg strax að þetta hefði verið í okkar eigu – kannski hefði einhver fengið það úti – en síðan var ég að taka til eftir vaktina, einn, og sá að á karlaklósettinu var plakatið horfið. Ég varð svo reiður því skilaboðin eru svo falleg og einföld,“ segir Richard.

27422-richard
Richard Allen, annar vaktstjóra KB.

„Ég gat ekki setið á mér og skrifaði um málið á Facebook sem vakti töluverða athygli.“ Í kjölfarið ákváðu Richard og Guðný, sem er hinn vaktstjóri barsins, að staðurinn skyldi setja veggfóður á allan vegg klósettsins en það endaði á því aðstandendur Druslugöngunnar mættu á Kafffibarinn og veggfóðruðu nokkra veggi staðarins.
„Það sem við erum að segja er að ef þið rífið niður eitt plakat þá setjum við upp tíu,“ bætir Richard við.

27422-veggfodur
Plaköt prýða veggi Kaffbarsins.

Guðný ítrekar ánægju sína með aðstandendur göngunnar: „Þau eiga gott hrós skilið fyrir þetta og ég var svo ánægð þegar þau komu með plakötin til okkar fyrst. Allir eiga að geta skemmt sér án þess að verða fyrir kynbundnu ofbeldi en í flestum tilfellum lætur fólk ekki vita ef það hefur orðið fyrir einhverju áreiti. Þessi plaköt opna fyrir mjög þarfa umræðu.“

 

27422-plakat
Plakötin sem gefin voru út á vegum Druslugöngunnar. Mynd|Druslugangan

The post Kaffibarinn: „Ef þið rífið eitt plakat þá setjum við upp tíu“ appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652