Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Magga Pála: Mega drengir vera viðkvæmir?

$
0
0

Hæ heimsins besta Magga Pála!

Takk fyrir allt það góða og frábæra sem þú hefur kennt mér í lífinu. Þú varst svo góð við okkur í leikskólanum og passaðir okkur svo vel. Þú kenndir okkur svo ótal margt gott sem ég hef notað sem leiðarvísi í mínu lífi. Ég hef reynt að fylgja þínum fræðum í uppeldinu á mínum börnum en núna er ég ráðþrota. Sonur minn er fjögurra og hálfs árs gamall. Hann vill ekki neitt, segir nei við öllu, þorir engu, hræddur við allt (líka litla maura) og suðar endalaust. Hann vill sjaldan leika úti og alls ekki í rigningu. Ég er mikið ein með börnin (hann og fjögurra mánaða systur) þar sem pabbinn þarf að ferðast mikið vegna vinnu. Hvað á ég að gera? Hvernig breyti ég þessari hegðun, þessum endalausu nei-um, hræðslu og suði? Ég yrði svo þakklát að fá nokkrar línur frá þér.
Með bestu kveðju og þakkir fyrir allt.

Elsku besta stelpan mín. Þú varst í fyrsta stúlknahópnum mínum, elskuð og ógleymanleg eins og öll þau börn sem ég hef fengið að eignast hlut í um stundarsakir. Takk innilega fyrir hlýju orðin þín og fyrir að leita til mín vegna drengsins þíns. Slíkt traust frá leikskólabarninu mínu yljar mér svo sannarlega um hjartarætur og vonandi er ég traustsins verð.

Þetta er allt í lagi

Hjartanlegar hamingjuóskir með börnin þín og það er engin ástæða til að vera ráðþrota með snáðann þinn. Hann æfir viljann sinn og segir nei af festu, slíkt á eftir að koma honum vel í lífinu. Stundum er nei-ið af tómum mótþróa en það má líka; besta leiðin er að bjóða upp á valkosti og það er allt í lagi þótt hann vilji ekki fara út, það er líka hollt að vera inni ef hann kýs það fremur og mögulega vill hann bara vera nálægt þér. Eins er með óttaviðbrögð hans við tilteknum atriðum. Það hjálpar aldrei að segja börnum að vera ekki hræddum heldur er betra að ræða um óttann, sýna honum hvernig þú snertir skordýr af gætni meðan hann er í öruggri fjarlægð og bjóða svo blessuðum pöddunum að fara heim til sín svo að þið getið verið í friði. Smátt og smátt vaknar áhugi hans á jákvæðan hátt ef hann finnur að þú ert ekki að pressa á hann. Svo segirðu að hann suði stöðugt í þér en það er trúlega hans leið til að ná athygli þinni. Mörg börn og reyndar fullorðnir beita þreytandi aðferðum ef þær hafa virkað á umhverfið og stundum er neikvæð athygli betri en engin. Hins vegar er drengurinn þinn án efa skynsamur og tilfinningaríkur eins og þú varst á hans aldri, hefurðu prófað að spjalla við hann um suðið? Hann mun skilja hvað þú ert að fara og þið getið hreinlega ákveðið að fara nýja leið ef hann vill athygli eins og að segja það beint út með glöðu röddinni sinni og svo æfið þið saman.

Fjarvera annars foreldris enginn heimsendir

Öryggi og festa er öllum mikilvæg og því reynir talsvert á fjölskylduna þegar annað foreldrið er í burtu. Hins vegar er fjarvera mannsins þíns enginn heimsendir heldur mikilvægt verkefni sem þið hjálpist að við að leysa. Drengurinn ykkar þarf að vita með fyrirvara hvenær pabbinn er heima og hvenær ekki og í vinnuferðum geta þeir feðgar spjallað saman á netinu, til dæmis á föstum tímum til að halda góðri reglu á samskiptunum. Röð, regla og rútína eru reyndar R-reglurnar mínar sem virka óendanlega vel, ekki að allt verði að vera þaulskipulagt í fjölskyldunni heldur fastir þræðir sem barnið getur alltaf gengið að vísum. Hins vegar er vinna og álag foreldra með tvö lítil börn oft vanmetin. Þegar þú ert ein á vaktinni, er líklegt að þú sért þreyttari og óþolinmóðari en ella og það getur drengurinn þinn fundið enda eru börn eins og loftvogir þegar kemur að líðan foreldranna. Þá mun hann spegla vanlíðan þína og reyna meira á þolrifin þín en ella. Getur verið að þú þyrftir meiri aðstoð við heimilið og börnin til að létta á ykkur öllum? Slíkt er ekki uppgjöf, heldur eintóm skynsemi.

Nýtt barn – áfall fyrir stóra bróður

Svo er lítil systir mætt til leiks og annað barn í fjölskyldu gerir meira en að tvöfalda álag og vinnu. Svo má ekki vanmeta áhrif nýja barnsins á snáðann ykkar sem hefur átt ykkur aleinn í fjögur ár. Hann veit að hann á að elska litlu systur og passa hana en það er ekki einfalt. Hún heimtar tíma og endalausa athygli sem honum finnst tekin af sér enda þarf hann nú að deila ykkur með henni til lífstíðar. Það er áfall og hann þarf að vinna úr því rétt eins og fullorðnir þurfa áfallahjálp. Ég veit að þið hafið hann með í stússinu, leyfið honum að hjálpa og sinna henni en hann þarf líka sinn einkatíma, ýmist með þér eða með pabba. Svo hvet ég ykkur til að ræða stundum við hann um erfiðleikana sem fylgja litlu systur, aðeins að minna hann á hvað hún geti lítið og kunni lítið, ósköp óspennandi miðað við allt sem hann kann og getur og hvað hún geti nú verið erfið. Slík umræða hjálpar barni að tala út erfiðar tilfinningar og í kjölfarið ræðið þið líka hversu yndisleg hún er og hvað þið eruð heppin að eiga hana þótt svo að henni fylgi stundum vesen og vandræði. :)

The post Magga Pála: Mega drengir vera viðkvæmir? appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652