Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Afkomendur vilja Frumskógardrottningu Errós burt

$
0
0

Afkomendur Guðmundar Þórs Pálssonar eru ósáttir við breytingar á húsi föður þeirra.

Afkomendur arkitektsins Guðmundar Þórs Pálssonar hafa stefnt Reykjavíkurborg fyrir brot á sæmdarrétti vegna framkvæmda við hús í eigu borgarinnar. Um er að ræða tvær stefnur sem snúa að sundlauginni og íþróttahúsinu í Breiðholti, Austurbergi 3. Erfingjarnir eru annarsvegar ósáttir við mósaíkverk eftir listamanninn Erró, sem borgin samþykkti að setja upp á vegg hússins árið 2014, en einnig eru erfingjarnir ósáttir við fyrirhugaða viðbyggingu sem verið er að reisa – og á að hýsa líkamsræktarstöð.

Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær en borgin bað um frest til þess að skila inn greinargerð vegna málsins. Guðmundur Þór teiknaði og hannaði húsið upphaflega fyrir borgina, en hann hefur einnig hannað fjölda skóla í Reykjavík, svo sem Seljaskóla, Selásskóla og Fjölbrautaskólann í Breiðholti.

Engar fjárkröfur eru settar fram í stefnu aðstandenda, aðeins er farið fram á að fallist verði á sjónarmið fjölskyldunnar. Verði það gert er þeim frjálst að stefna borginni og krefjast skaðabóta úr hennar hendi ef tilefni er til auk þess sem borgin myndi þá þurfa að fjarlægja listaverkið.

„Þetta er auðvitað mjög sérstakt,“ segir Hjálmar Sveinsson, formaður umhverfis- og skipulagsráðs og varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Ráðið var á meðal umsagnaraðila sem fóru yfir þá framkvæmd að setja mósaíkverk Errós á húsið, sem og fleiri hús í hverfinu, eins og þekkt er. Meðal annars má finna stóra veggmynd á blokk í Álftahólum.

Verkið á vegg íþróttamiðstöðvarinnar í Austurbergi ber nafnið Frumskógardrottningin og var afhjúpað árið 2014. Markmiðið var að fjölga listaverkum í opinberu rými í Breiðholti en verkefninu var einnig ætlað að breiða út list í opinberu rými utan miðborgarinnar, fegra hverfið og skapa umræðu.

„Það var auðvitað gert í góðri trú að fá þennan heimsfræga myndlistarmann til þess að skreyta húsið,“ segir Hjálmar og bætir við: „Hvað viðbygginguna varðar, þá er það langþráð líkamsræktarstöð.“

Hann segist ekki hafa hugmynd hvort að brotið hafi verði á sæmdarréttinum, „enda er sæmdarréttur og höfundarmál flókið mál,“ segir Hjálmar. Aðspurður segist hann ekki vita til þess að aðstandendur Guðmundar Þórs hafi sett sig í samband við ráðið. Þá segist hann ekki vita til þess að haft hafi verið samband við fjölskylduna vegna breytinga á húsinu.

„Borgin telur sig hafa ákveðinn umráðarétt yfir húsi sem hún á og rekur,“ segir Hjálmar og mun borgin líklega leggja fram greinargerð í málinu á þeim forsendum.

Formaður Félags arkitekta, Aðalheiður Atladóttir, segir mál er varða sæmdarrétt alltaf koma upp af og til hjá félaginu.

„Svona hefur komið fyrir, en línurnar eru ekki alltaf skýrar hvað þetta varðar,“ segir hún og bendir ennfremur á að ef miklar breytingar eru gerðar á húsnæði, þá sé arkitektum oft skylt að leita til fyrri arkitekts, eða, ef svo ber við, afkomenda, vegna breytinga. Þetta sé þó ekki endilega einhlítt.

„Það mætti þó alveg vekja fólk til umhugsunar, og ekki síst okkur sjálf, arkitektana, að almennt mættu menn tala betur saman þegar breytingar eru gerðar á húsnæði,“ segir Aðalheiður.

The post Afkomendur vilja Frumskógardrottningu Errós burt appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652