Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Vill rannsaka viljayfirlýsingu vegna Íraksstríðs

$
0
0

Birgitta Jónsdóttir segir tilefni til þess að rannsaka ákvörðun um að setja nafn Íslands á lista hinna staðföstu þjóða. 

Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, telur fullt tilefni til þess að rannsaka nánar hvernig var staðið að ákvörðun um að setja nafn Íslands á lista hinna staðföstu þjóða árið 2003.

„Þetta mál er algjörlega óuppgert og gríðarlega stór hluti þjóðarinnar var ósáttur við að Ísland var sett á þennan lista,“ segir Birgitta.

John Chilcot, formaður breskrar rannsóknarnefndar um Íraksstríðið, kynnti niðurstöður nefndarinnar á miðvikudaginn þar sem fram kom að innrásin í Írak árið 2003 var háð á röngum forsendum. Þá kom einnig fram í skýrslunni að breska ríkisstjórnin hefði tekið þátt í stríðinu án þess að kanna alla möguleika á friðsamlegri afvopnun, auk þess sem lítil umræða fór fram um málið.

„Skýrslan er gott tilefni til þess að kanna hvernig var staðið að þessu hér á landi,“ segir Birgitta, en það voru þeir Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráðherra, og Halldór Ásgrímsson heitinn, sem þá var utanríkisráðherra, sem tóku ákvörðunina án þess að bera hana undir þing eða utanríkismálanefnd.

„Nú ætla ég bara að fara í upplýsingaöflun um málið,“ segir Birgitta um næstu skref, en lög um rannsóknarnefndir voru samþykkt árið 2011. Því er ekki útilokað að vísa málinu til rannsóknarnefndar, sé ástæða til. -vg

The post Vill rannsaka viljayfirlýsingu vegna Íraksstríðs appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652