Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Frumskógardrottningin kornið sem fyllti mælinn

$
0
0

Lögmaður segir arkitekta oft ekki þora í mál af ótta við að vera settir út af sakramentinu.

„Ástæðan fyrir því að það er stefnt núna í málinu er sú að það hefur, að mati stefnenda, verið gengið áður gegn höfundarrétti Guðmundar Þórs. Og þó að menn hafi áður kyngt því var þetta kornið sem fyllti mælinn“ segir Einar Páll Tamimi, lögmaður afkomanda arkitektsins, Guðmundar Þórs Pálssonar, sem hannaði íþróttamiðstöðina Austurbergi 3 í Breiðholti.

Eins og Fréttatíminn greindi frá fyrir viku, hafa afkomendur Guðmundar Þórs stefnt Reykjavíkurborg vegna uppsetningar á listaverkinu Frumskógardrottningin, eftir Erró, auk þess sem stefnt er vegna viðbyggingar við íþróttamiðstöðina, þar sem líkamsræktarstöð verður til húsa. Í báðum tilfellum er talið að brotið hafi verið á höfundarverki Guðmundar.

„Það hvarflar þó ekki að erfingjum Guðmundar að stöðva framkvæmdirnar sem þegar eru hafnar í tengslum við byggingu líkamsræktarstöðvarinnar,“ útskýrir Einar Páll, en líkamsræktarstöðin, sem verið er að byggja, er ansi langþráð af íbúum hverfisins.

Hann segir málið snúa fyrst og fremst að því hvar mörkin liggja á milli höfundaréttar hönnuðar og réttar eiganda mannvirkis. Þetta sé ekki síst mikilvægt þegar um sé að ræða stóra verkkaupa eins og ríki og borg. Margir hönnuðir telji að þessir aðilar hafi endurtekið gengið gegn höfundarrétti þeirra við breytingar á húsum í þeirra eigu.

„Vandinn hefur verið sá að það er fullt af óánægðum hönnuðum úti um allt, sem hafa verið að hanna fyrir ríki og borg og hafa lent í því að verið er að krukka í byggingum sem þeir hafa hannað án samráðs við þá. Oft þora þeir ekki að fara með málin fyrir dóm, því þá er hætt við því að stærstu verkkauparnir, sem eru ríki og borg, setji þá einfaldlega út af sakramentinu,“ segir Einar Páll. -vg

The post Frumskógardrottningin kornið sem fyllti mælinn appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652