„Því miður drapst 65% af öllum býflugnastofninum í landinu þarsíðasta vetur, eftir erfitt sumar,“ segir Egill Rafn Sigurgeirsson, formaður Býs, býflugnafélags Íslands. Egill kom til landsins frá Álandseyjum í vikunni með 26 nýja býpakka, eða 39 kg af býflugum og 26 drottningar.
Egill segir ganga frekar illa að halda býflugur á Íslandi en áhugi fólks sé svo mikill að það vilji meira. Nýju flugurnar bæti upp búin sem hafi fallið síðustu ár og gott betur en það.

Félagið Bý var stofnað árið 2000 og fer ört stækkandi. Sjálfur er Egill einn af frumkvöðlum þessarar ræktunar hér á landi. „Ég flutti heim til Íslands árið 1998 eftir að hafa verið með býflugur í tíu ár og tók þær með heim. Það skemmtilegasta við þetta hobbí er dýrið sjálft og samfélagsmyndunin hjá þeim. Mér finnst langskemmtilegast að fylgjast með þeim og sjá hvernig þær vinna. Hunangið er bara bónus,“ segir Egill en það vakti athygli blaðamanns að hann var léttlæddur í engum hvítum galla þar sem hann stússaðist með flugurnar. „Þetta eru svo gæfar flugur að það er ekkert að óttast. Þetta er eins og hver önnur ræktun, maður ræktar gæðinga og gæfar flugur.“


The post Nýjar drottningar til landsins appeared first on Fréttatíminn.