Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, braut gegn lögum um persónuvernd þegar meðlimur Vöku hringdi í nemanda skólans sem er skráður á bannskrá Þjóðskrár Íslands. Hringjandi hugðist kynna stefnumál stúdentafélagsins fyrir einstaklingnum og segir í málsvörn Vöku viðkomandi hafi líklega fundið númerið á innraneti skólans, Uglunni.
„Okkur datt ekki í hug að Uglan innihéldi símanúmer sem væru bannmerkt í Þjóðskrá. Hringt hefur verið í hann að öllum líkindum einungis í þeim góða tilgangi að spyrja hann að því hvað honum þætti mega fara betur við háskólann […]“ segir í málsvörn Vöku sem birt er á vef Persónuverndar. Viðurkenna þau mistökin fúslega og biðjast afsökunar. -vg
The post Vaka braut persónuverndarlög appeared first on Fréttatíminn.