Það getur verið vandasamt að pakka fyrir ferðalagið og oftar en ekki gleymum við einhverju. Hér eru nokkrir hlutir sem fæstir pakka en sem ættu þó að vera í hverri ferðatösku.
Engifer
Engiferrótin hefur frá örófi alda verið þekkt fyrir sinn kröftuga lækningamátt. Einn af hennar undraverðu eiginleikum er að hún vinnur á sjóveiki. Þeir sem eiga það til að verða bílveikir eða sjóveikir ættu því að taka með sér engiferrót sem síðar er hægt að gera soð úr, eða þá engifer sem hefur verið sykrað og sneitt niður í karamellur, með í ferðalagið.
Papaya
Á ferðalögum eigum við það til að setja ofan í okkur mat sem við erum ekki vön að borða heima hjá okkur, eða of einsleitan mat. Þetta veldur oft magaónotum sem hægt er að taka allskyns pillur við. Önnur leið er að sleppa eftirréttum og fá sér frekar dýrindis papaya eftir hverja máltíð því þessi karabíski ávöxtur er stútfullur af papain ensímum sem örva meltingu og róa magann.
Eucaliptus
Allir sem halda á suðrænar slóðir ættu að hafa með sér eitt lítið glas af eucaliptus olíu í snyrtibuddunni. Einn dropi á líkamann hjálpar til við að halda moskítóflugunum frá en svo er líka mjög sniðugt að dreifa nokkrum dropum um hótelherbergið eða íbúðina því hitinn magnar upp ilminn af olíunni og heldur þannig moskítóflugunum frá.
Kamilla
Kamilla er bólgueyðandi jurt og hjálpar því til við að minnka bólgur eftir hverskyns skordýrabit. Þeir sem eru svo óheppnir að vera alltaf stungnir af moskítóflugum ættu að sjóða kamilluseyði, geyma það í kæliskápnum og setja það svo í ískalda í bómull sem er svo lögð á bitin til að minnka bólgur og kláða.
Hafrar
Eftir langan dag á ströndinni, sérstaklega ef húðin er dálítið rauð, er gott og svalandi að fylla baðkarið af volgu vatni og setja eitt glas af höfrum í baðvatnið. Þegar hafrarnir blotna í vatninu byrja þeir að hafa mýkjandi áhrif á húðina og klístruð blandan gerir kraftaverk fyrir sólbrunna húð.
Óreganó
Þeir sem eru hrifnari af sundi en baðströnd í sumarfríum ættu að íhuga að taka með sér einn poka af þurrkuðu óreganói því það er náttúruleg sveppavörn. Tíðar sundferðir í erlendum laugum þar sem hefðin er ekki að þrífa sig áður en farið er ofan í bjóða hættunni á fótsveppum heim en óreganó-fótabað kvölds og morgna getur unnið gegn þeim.
Grasker
Þeir sem geta ekki sofið í fríinu vegna stress eða vegna kvíða yfir því að fríinu sé að ljúka ættu að narta í graskersfræ. Þau eru rík amínósýrum sem hjálpa okkur að sofa betur.
Heimildir:
Newall CA, Anderson LA, Philpson JD. Herbal Medicine: A Guide for Healthcare Professionals. London, UK, The Pharmaceutical Press 2013.
The post Náttúrulegir ferðafélagar appeared first on FRÉTTATÍMINN.