Sumarið er tíminn til að njóta lífsins með sínum nánustu og upplifa nýja hluti. Nú þegar sumarfrí í skólum og leikskólum standa sem hæst er tilvalið fyrir þá sem hafa fengið nóg af tjaldútilegum og bílferðum í bili að kynna sér hvað borgin okkar hefur upp á að bjóða.
Borgarpassinn, eða Reykjavík City Card, veitir aðgang í strætó og sund, auk aðgangs að söfnum Reykjavíkurborgar, svo sem Árbæjarsafni og Þjóðminjasafninu. Passinn gildir einnig sem aðgöngumiði í Viðeyjarferjuna og Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Svo virðist sem passinn sé eingöngu ætlaður fyrir ferðamenn, en í raun er þetta vannýtt tækifæri fyrir Íslendinga til að gerast ferðamenn í eigin borg. Því kynntust þau Sigrún Helga Davíðsdóttir og Elías Kjartan Bjarnason fyrir nokkru, en þeim áskotnaðist tveggja daga passi fyrir tvo fullorða og tvö börn.
Pikknikk og fjöruferð í Viðey
„Við ákváðum að bjóða frænku minni sem er fimm ára og frænda Elíasar sem er sjö ára að gista hjá okkur heila helgi og vorum að leita að einhverju skemmtilegu að gera sem hentaði þessum aldri og okkur í leiðinni. Stjúpmamma mín gaf mér þá borgarpassann, sem hún hafði unnið í happdrætti. Ég hafði ekki heyrt af þessum passa áður og hann kom því skemmtilega á óvart.“ Sigrún segir að það hafi verið smá púsluspil að raða saman því sem þau vildu gera. „Við ákváðum á endanum að velja staði sem eru nálægt hver öðrum. Við fórum í Viðey, Árbæjarsafn og Árbæjarlaug fyrri daginn og Fjölskyldu- og húsdýragarðinn og Laugardalslaugina seinni daginn. Við hefðum eiginlega þurft einn dag í viðbót til að ná miðbænum líka.“

Í Viðey lærðu Lovísa og Grétar Máni meðal annars að blása í strá.
Sigrún segir að helgin hafi verið besta skemmtun og erfitt sé að velja hvað stóð upp úr. „Samveran var án efa skemmtilegust. En í Viðey fórum við í fjöruferð, pikknikk og æfðum okkar að blása í strá. Svo var mikið sport að fara í ferjuna sjálfa. Við skemmtum okkur öll ótrúlega vel saman og lýsti Grétar Máni helginni sem bestu helgi lífs síns,“ segir Sigrún. Hægt er að velja hversu lengi passinn gildir, allt frá einum sólarhring upp í þrjá, og eru verðin eftir því. Þrír dagar fyrir fullorðna kosta til að mynda 4.900 og 3.000 krónur fyrir börn 6-18 ára. „Passinn er fljótur að borga sig upp þannig þetta er vel þess virði og sniðug lausn fyrir fjölskyldur eða vinahópa sem eru að leita eftir skemmtun í borginni og nágrenni hennar,“ segir Sigrún.

Kassabíllinn var fyrirtaks ferðamáti um Árbæjarsafnið.
Gestapassi fyrir innlenda og erlenda gesti
Drífa Magnúsdóttir, upplýsingafulltrúi hjá Visit Reykjavík, segir að passinn sé hugsaður fyrir gesti Reykjavíkur, hvort sem þeir eru erlendir eða innlendir. „Einhverra hluta vegna hefur ekki gengið neitt sérstaklega vel að markaðssetja gestapassann fyrir innanlandsmarkað, sama hvað við höfum reynt. En ég veit að þeir Íslendingar sem hafa nýtt sér passann hafa skemmt sér konunglega, sérstaklega börnin,“ segir Drífa, en hún segir jafnframt að passi af þessu tagi sé vel þekktur í öðrum borgum. „Passinn er auðvitað tilvalinn fyrir fjölskyldufólk sem er í sumarfríi og vill finna sér eitthvað skemmtilegt að gera í borginni okkar,“ segir Drífa. Borgarpassinn er fáanlegur á öllum helstu ferðamannastöðum í borginni og það er því um að gera að reima á sig túristaskóna og gerast ferðamaður í eigin höfuðborg.
The post Ferðamenn í eigin borg appeared first on FRÉTTATÍMINN.