Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Símamótið 2015 – Sérblað með Fréttatímanum 17. júlí

$
0
0

Helgina 16.-19. júlí fer Símamótið í fótbolta fram fyrir 5-12 ára stelpur. Mótið er stærsta knattspyrnumót sem haldið er á Íslandi ár hvert og er hið glæsilegasta. Símamótið er haldið á svæði Breiðabliks í Kópavogi. Keppendum fylgja gríðarlega margir aðdáendur og er stemmningin og gleðin á mótinu einstök.

Fréttatíminn vill styðja við bakið á ungum upprennandi fótboltastelpum og gefum við út Símamótsblað 17. júlí af þessu tilefni. Blaðinu verður dreift inn á öll heimili á höfuðborgarsvæðinu auk þess sem ríflega 3000 eintök verða á mótssvæðinu fyrir gesti og gangandi að glugga í.

Við munum fjalla um mótið frá alls kyns sjónarhornum, taka viðtöl við fyrrum og núverandi keppendur, þjálfara og aðstandendur mótsins og koma að alls konar fróðleik um sögu mótsins og kvennaknattspyrnunnar á Íslandi.

Einnig munum við hafa sérstakan leik fyrir þátttakendur mótsins þar sem hægt verður að vinna sér inn veglega vinninga. Það verða því ungir sem aldnir sem hafa gagn og gaman af blaðinu

Við bjóðum upp á kynningar og auglýsingar í blaðið á frábæru verði.
Hafðu samband við Gígu Þórðardóttur sem hefur umsjón með þessu blaði og fáðu nánari upplýsingar hvernig þú getur komið upplýsingum á framfæri í blaðinu. Hægt er að ná í hana í síma 531 3312 eða með tölvupósti á gigja@frettatiminn.is

The post Símamótið 2015 – Sérblað með Fréttatímanum 17. júlí appeared first on FRÉTTATÍMINN.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652