Innan um marglitar blokkir og hvít einbýlishús stendur verslunarkjarninn Engihjalli í austurhluta Kópavogs. Fáni hefur verið dreginn í stöng og á honum er vörumerki matvörubúðarinnar „Iceland“ sem þar er til húsa. Akureyrska undrið Brynjuís er þar einnig með sitt fyrsta útibú á höfuðborgarsvæðinu, auk kebabstaðarins Viking kebab sem rekinn er af Pólverjum. Ljóst er að ákveðin gróska á sér stað í hverfinu en þar er margt um manninn og segja sumir að Engihjalli sé Brooklyn Kópavogs.

Ódýrar sígarettur
„Ég hef verið að vinna hérna síðan í febrúar en ég bý í hverfinu sem er mjög hentugt,“ segir Fanný, vaktstjóri matvörubúðarinnar Iceland.
„Í dag þarf að fylla á vörur en það er ansi mikið að gera. Sérstaklega um helgar reyndar. Hingað koma aðallega Íslendingar og ekki bara þeir sem búa í hverfinu heldur alls staðar að. Ég held það sé að stórum hluta vegna þess að við seljum svo ódýrar sígarettur. Þær hafa ákveðið aðdráttarafl.“

Rosalega þyrstur
Jóhann býr í nágrenninu en segist sjaldan koma við á Engihjalla. „Ég verð að kaupa mér eitthvað að drekka því ég er svo rosalega þyrstur, er í fríi frá vinnunni og skólanum sko. Maður kemur stundum hingað að kaupa mat því það er frekar ódýrt en ekki eins og Bónus eða eitthvað. Það góða við Iceland er samt að hér er opið „twentyfour seven“. En ekki misskilja mig, ég er aldrei að hanga hérna.“

Akureyrska undrið
„Þetta er ný búð og raunar fyrsta útibú utan Akureyrar,“ segir Fríða sem er verslunarstjóri í Brynjuís en með henni stendur Katla vaktstjóri vaktina. „ – aðalfólkið að sjálfsögðu. Blandarinn á bakvið.“
Þær segja margar hugmyndir hafa komið upp varðandi staðsetningu útibúsins í Reykjavík.
„Aðalpælingin var náttúrulega að vera í fjölskylduhverfi þar sem væru bílastæði að ísbúðinni. Engihjalli varð fyrir valinu en það góða við hann er ekki síður það að við erum nálægt öllum öðrum hverfum,“ segir Fríða.
Vaktstjórinn Katla segir dagana frekar rólega í ísbúðinni. „Eða þetta er svona upp og ofan. Það var mikið að gera hjá okkur í gær því þá var veðrið svo gott. Síðan er mikið að gera á kvöldin. Um helgar eru fáir í bænum. Allir úti á landi – á Akureyri vonandi, að fá sér ís þar.“

„Mig langar í strætó!“
„Engihjalli er hverfisbúðin okkar,“ segir Kim sem er frá Taílandi og er í göngutúr ásamt syni sínum Kristoffer. Hún segir þau eiga erindi í verslunarkjarnann nærri því á hverjum degi en dagurinn í dag sé þó undantekning frá því þar sem þau séu einfaldlega í göngutúr um hverfið. „Mig langar í strætó!“ segir Krisoffer og Kim brosir.
„Við kíkjum kannski í strætóferð ef við hann keyrir hjá,“ bætir hún við en hefur varla sleppt orðinu þegar strætó birtist á götuhorninu. Mæðginin kveðja því með hraði og hlaupa í átt að nærliggjandi strætóskýli.

Ekki pólskur þjóðarréttur
„Lúxus kebab er vinsælastur en hann er með osti, beikoni, grísa- eða lambakjöti (blandað er best) káli, tómötum, lauki og sósu,“ þylur Kamil upp en hann afgreiðir mat á Viking Kebab. „Sósan er spicy eða hvítlauks, mild eða blönduð.“
Hann segir staðinn hafa verið starfandi í meira en ár en viðskiptavinir séu fjölmargir og frá öllum heimshornum. „Hingað koma Íslendingar, Pólverjar, Rússar, Úkraínumenn og Filippseyingar,“ segir Kamil.
Hann viðurkennir að kebab sé síður en svo þjóðarréttur Pólverja en hugmyndin hafi bara komið upp. „Þetta er bara svo vinsæll skyndibiti og allir sólgnir í hann.“

Kebab fyrir víkinginn
„Ég er bara í hádegishléi og er hérna í fyrsta skipti,“ segir sendibílstjórinn Kjartan sem bíður eftir mat á Viking Kebab. Raunar minnir Kjartan ískyggilega á víkinga liðinna alda með úfið skegg og ákveðið augnaráð. „Ég er ekki einu sinni rakaður og greiddur fyrir mynd,“ segir hann afsakandi
„Annars langaði mig bara að fá mér að borða en ég hef verið áður á þessu svæði. Síðast var ég að fá mér Brynjuís hérna og rak augun í þennan stað, fannst kjörið að koma hingað og prófa í dag.“

Snyrtistofan Rós
Íbúar Kópavogs kannast margir við snyrtistofuna Rós sem hefur verið starfandi í 25 ár, alltaf á sama stað. Kúnnahópurinn er stór að sögn eigandans Sigurrósar og samstarfskonu hennar Önnu Lísu. „Fólk er meira að segja að koma erlendis frá,“ segir Anna og bætir við að nóg sé að gera en þær séu bara tvær starfandi á snyrtistofunni í dag.
„Við bjóðum upp á allskyns þjónustu; almenna snyrtingu, andlitsböð, litanir, fót- og handsnyrtingu, rafmagnsháreyðingar svo fáein dæmi séu nefnd,“ segir Sigurrós glöð í bragði og Anna Lísa kinkar kolli.

Vöfflur fyrir ömmu
„Ég er bara að kaupa í vöfflur sem ég ætlað baka fyrir ömmu,“ segir Kópavogsmærin Íris en amma hennar er á spítala. „Og líka rjóma og sultu. Allt fyrir ömmu,” bætir hún við en Íris er ánægð með Engihjalla og verslar mikið við Iceland að eigin sögn.
The post Í hjarta austurbæjar Kópavogs appeared first on Fréttatíminn.