„Ég fann bara að mig langaði að vera áfram,” segir Kristel Eir sautján ára íbúi á Sauðárkróki sem fór í Skagafjörðinn að vinna á bóndabæ síðasta sumar og sneri ekki aftur heim.
„Ég er úr Skagafirði og ólst upp hérna þegar ég var lítil. Hins vegar fluttist fjölskyldan mín suður þegar ég var bara barn og þó ég muni kannski lítið eftir því þá segir mamma alltaf að ég sé mesti Skagfirðingurinn í fjölskyldunni.“
Raunar sneri Kristel heim í lok sumarsins í fyrra enda ætlaði hún að hefja nám við Menntaskólann í Kópavogi en hún var ekki lengi að taka ákvörðum um að breyta þeim plönum. „Ég kom heim viku fyrir skólann og fann strax að mig langaði bara að vera á Sauðárkróki. Ég spurði mömmu: Heyrðu má ég ekki bara flytja á Sauðárkrók og fara í skóla þar? Þá hló hún að mér og sagði: Þú munt aldrei gera það. En ég horfði bara á hana og sagði: Uuuuuu, jú!“ Í framhaldi af því hringdi Kristel í menntaskólann á Sauðárkróki og fékk inngöngu í skólann þar sem hún hefur verið í námi í einn vetur.

„Ég er ógeðslega ánægð með þessa ákvörðun. Það besta sem hefur gerst,“ bætir hún við.
Var engin önnur ástæða fyrir ákvörðuninni?
„Jú, það gerðist líka í fyrrasumar að ég kynntist strák. Hann spurði hvort ég vildi ekki bara flytja hingað. Við erum búin að vera í ár saman núna um helgina,“ bætir hún við.
Greinilegt er að Kristel Eir er afar dugleg en í sumar er hún í tveimur vinnum. „Ég er að vinna á veitingastaðnum Ólafshúsi og í bakaríinu á Króknum. Það fyndnasta sem hefur gerst hingað til var þegar ég var að afgreiða túrista í bakaríinu einn morguninn en fór síðan á vakt á veitingastaðnum um kvöldið og afgreiddi þau aftur. Morguninn eftir afgreiddi ég þau síðan aftur í bakaríinu. Litli strákurinn í fjölskyldunni horfði stóreygur á mig,“ segir Kristel að lokum og hlær dátt.
The post Sneri ekki aftur heim appeared first on Fréttatíminn.