Páfagaukurinn Ber og dverghamsturinn Hress voru sannir vinir jafnvel þótt þeir væru af hvor af sinni dýrategundinni og hefðu aldrei hist utan búranna sinna. Þegar Hress dó í hárri hamstraelli síðasta vetur varð Ber að vonum einmana og döpur.
Dýrin ólu manninn í Hlíðunum hjá systrum tveimur og foreldrum þeirra. Þegar sú eldri var fimm ára var hún verðlaunuð fyrir góða hegðun með gæludýri og varð grænn páfagaukur með blárri doppu undir stélinu fyrir valinu. Fuglinn var nefndur Bláber vegna bláu doppunnar en hefur þó verið kallaður Ber alla tíð.
Ber var ekkert rosalega geðgóður fugl en eigendur hans héldu lengi vel að hann væri karlfugl. Þegar í ljós kom að hún reyndist kvenkyns og farið var að tala um hana sem slíka fór hegðunin mjög batnandi.
Þess má geta að Ber hefur verið leiðarvísir fjölskyldunnar í Eurovision alla sína tíð en þá er henni sleppt lausri og hún fær að fylgjast með. Ef hún syngur með laginu er vitað að lagið kemst ekki áfram
Dverghamsturinn Hress kom til sögunnar nokkrum árum seinna þegar yngri systirin fékk sama tilboð og sú eldri. Eftir að hafa sofnað ein í rúmi sínu í fimmtíu nætur áskotnaðist henni gæludýr og valdi hún sér hinn síkáta hamstur Hress sem hún nefndi sjálf og endurspeglaði léttlyndi dýrsins.
Hress fékk oft að hlaupa um gólfið í kúlubúri svo nágrannarnir héldu að fjölskyldan á efri hæðinni væru með brauðvél í gangi síðla kvölds en dverghamstrar eru næturdýr og Hress stóð sérstaklega vel undir nafni á kvöldin.
Þó Ber og Hress hafi aldrei hist utan búra sinna voru þau oft í sama rými þar sem búr þeirra voru hlið við hlið og vissu því vel hvor af annarri. Þeim leiddist óbærilega ef þær voru ekki í sama rými þó þær væru sjaldan úti á sama tíma.
Hress dó hárri hamstraelli síðasta vetur, tveggja og hálfs árs, og var öllum harmdauði enda einstaklega skemmtilegt dýr. Ber fann líka fyrir því að missa vinkonu sína úr búrinu við hliðina og það var ekki fyrr en tveimur mánuðum seinna að nýr hamstur kom í stað vinkonu hennar að Ber fór að hressast.
The post Hamsturinn Hress og gaukurinn Ber appeared first on Fréttatíminn.