Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Breiðir út fagnaðarerindi spunans

$
0
0

Dóra Jóhanssdóttir, móðir spunaleikhópsins Improv Ísland, flakkaði milli New York og Reykjavíkur til að kenna Íslendingum spunatækni sem vinsælustu grínþættir Bandaríkjanna eru byggðir á. Hún hefur í nægu að snúast, skrifar grínþættina Hipstery ásamt Sögu Garðars og leikstýrir nýju verki í Borgarleikhúsinu.

Margir af fremstu grínistum í heimi koma úr Improv. Bill Murray, Tina Fey, Will Ferrell og Steve Carrell. Maður lærir að reyna ekki að vera fyndinn, þannig verður maður fyndinn,“ segir Dóra Jóhannsdóttir stofnandi spunaleikhúsins Improv Ísland sem sýndi í Þjóðleikhúskjallaranum í vetur.

Dóra útskrifaðist úr leiklistarskólanum árið 2006 og fékk samstundis samning við Þjóðleikhúsið og seina við Borgarleikhúsið. „Ég var alltaf mjög ánægð í leikhúsinu. Hinsvegar hefur draumurinn um að gerast leikstjóri alltaf verið þarna, aftast í kollinum. Það var engin sviðshöfundarbraut í boði í þá daga svo leikarabrautin varð fyrir valinu.“

Heillaðist af spuna

Eftir sjö ár í leikhúsum á Íslandi fluttist Dóra til New York með manninum sínum, Jörundi Ragnarssyni, og syni þeirra Ragnari, þá tveggja ára. „Við höfðum ekki efni á leikskóla svo ég var heimavinnandi um tíma. Ég var óviss hvað ég ætti taka mér fyrir hendur en var handviss um að ég myndi finna eitthvað sem væri spennandi. Áður en ég flutti fannst mér skemmtilegast að vinna í kómík og nýsköpun í leikhúsi. Þegar ég kynntist Improv senunni í New York þá varð ég alveg heilluð, ég fann að það sameinaði allt sem ég elska við leiklist.“

Endurkoma spunaleikhússins

Spunasenan átti sinn sprett á Íslandi fyrir rúmum tíu árum, þá ber að nefna Leikhússport og Leiktu betur keppnir í framhaldsskólum. Sá spuni flokkast undir svokallaðan „short form“ spuna sem grínþættirnir Whose Line Is It Anyway ruddu brautina fyrir á tíunda áratugnum. Formið byggir á stuttum senum þar sem leikari spinnur út frá fyrirfram gefnum leikjum og reglum. Improv Ísland byggir hinsvegar á „long form“ hugmyndafræði, þar sem leikararnir spinna heila sýningu frá grunni. Þættir á borð við The Office, Parks and Recreation og 30 Rock byggja á því formi.

„Improv-senan í Bandaríkjunum er risastór. Fólk er í mörg ár að læra tæknina á bakvið góðan spunaleik, þar eru sérstakir skólar sem sérhæfa sig í spuna. Eftir þrjú til fimm ár af stöðugum æfingum, á sviði og æfingum í fjölbreyttri tækni, kemst aðeins lítil prósenta leikara í leikhópa og þar er stór stökkpallur fyrir marga,“ segir Dóra en hún lærði Improv og „sketcha“ skrif í Upright Citizens Brigade sem spunadrottningin Amy Pholer stofnaði í New York. „Ég kom heim til Íslands um jólin og á sumrin. Ég var í erfiðleikum með að útskýra fyrir vinum og fjölskyldu hvað ég væri nákvæmlega að læra. Upp kom sú hugmynd að ég myndi halda námskeið fyrir leiklistarvini mína í bransanum og þannig byrjaði þetta allt saman.“

Uppselt á allar sýningar

Í hvert skipti sem Dóra kom til Íslands breiddi hún út fagnaðarerindið líkt og hún lýsir sjálf hlæjandi. „Ég kom og kenndi það sem ég hafði lært jafnóðum á hverri önn. Breiddi út fagnaðarerindið á hálfsárs fresti. Á fyrsta námskeiðinu var ég ekkert alveg viss á öllu sem ég reyndi að miðla, enda nýbyrjuð að læra tæknina sjálf. Fljótlega spurðist spunanámskeiðið, Haraldurinn, út og ásóknin jókst. Mig hefði aldrei órað fyrir hversu hratt samfélagið óx.“

27825 Dora 06613

Í dag áætlar Dóra að um 340 manns séu meðlimir í íslenska spunaleikhúsinu Improv Ísland og Haraldinum. „Það eru stjörnur að fæðast í þessum hópi og það verður gaman að fylgjast með þeim vaxa næstu árin. Ég hélt í fyrstu að það tæki sjö ár áður en nægilega margir væru komnir með reynsluna sem þarf til að flytja „long form“ Improv á Íslandi. Hópurinn er hinsvegar svo metnaðarfullur og flottur að á þremur árum vorum við komin í Þjóðleikhúskjallarann og uppselt á hverja sýningu.“ Þá er engum ofsögum sagt en Íslendingar eru sólgnir í spunaleikhús og var uppselt á allar sýningar frá febrúar til júní. „Ég hefði ekki trúað þessu. Draumurinn er að þetta verði stærra og fjölbreyttara batterí. Við erum farin að skrifa „sketcha“ út frá grínfræðum og spennandi að sjá það þróast.Það eru fleiri farnir að kenna og við fáum reglulega til okkar kennara frá Ameríku.“

Skrifar með Sögu Garðars

Dóra hefur ekki sama tíma og áður til kennslu en hún tekst á við ný og spennandi verkefni í haust. „Ég kem til með að leikstýra nýju verki í Borgarleikhúsinu kallað the Flick á frummálinu. Ég er með þrjá frábæra leikara og við frumsýnum verkið í haust, ég er alveg ótrúlega spennt,“ segir Dóra en þar með er ekki allt talið. „Seinna í vetur kem ég að verkinu Fórn með ÍD ásamt Ernu Ómars, Valdimar Jóhannssyni og fleirum. Einnig er ég að skrifa grínþætti með Sögu Garðars.“

27825 Dora_FÞættirnir bera verkheitið Hipsterey og vinna þær stöllur með framleiðendum um þessar mundir. „Ég get ekki upplýst meira um þættina að svo stöddu en við erum að skrifa á fullu. Saga þekkir vel til spunans og við tölum því sama tungumálið. Saga er fyndnasta og klárasta manneskja sem ég þekki. Fyrst og fremst hefur verið viðbjóðslega gaman hjá okkur.“

Gleðivíma og adrenalín

Með reynslu spunaleikhússins í farteskinu er fátt sem kemur Dóru úr jafnvægi þegar kemur að leiklist. „Þú þarft að vera tilbúinn til að fara á sviðið og deyja, er oft sagt í spunanum,“ segir Dóra hlæjandi. Ef þú þorir þá getur þú allt.„Flestir eru stressaðir fyrir fyrsta tímann en sjá fljótt að það er engin ástæða til.“ Spuninn hefur hjálpað Dóru persónulega. „Þetta er ótrúlega mikil útrás og einskonar hugleiðsla. Þó það sé hellingur í gangi í lífinu þá er sviðið staðurinn sem ég upplifi algjört zen, þú gleymir öllu í formúlu gleðivímu og adrenalíns. Að þora að vera í í frjálsu falli, vita ekkert hvað er að fara gerast og læra að elska það.“

Heimspeki spuna byggir á kærleik, hlustun og jákvæðni, eitthvað sem okkar samfélag hefði gott af samkvæmt Dóru. „Hlustunin er eitt það mikilvægasta, í grunninn snýst spuni einfaldlega um það að hlusta og bregðast við. Fólk er einfaldlega lélegt í að hlusta. Það eru svo margir að berjast fyrir sínu og rembast við að koma sinni skoðun á framfæri, í stað þess að hlusta og meta hvað sé í gangi. Maður lærir að tapa í spunaþjálfun og sleppa takinu. Þú stjórnar því ekki hvert senan fer og þarft sífellt að henda hugmyndum en halda svo áfram. Stundum þarf að sætta sig við það sem komið er og spinna út frá því. Þannig virkar lífið… og spuninn.“

The post Breiðir út fagnaðarerindi spunans appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652