„Við viljum vekja áhuga fólks á hjólum en ekki troða þeim niður kokið á því,“ segir David Robertson hlæjandi en hann rekur hjólreiðaverslunina Kría Hjól ásamt Emil Guðmundssyni. Segja má að Kría hafi farið á flug á síðustu árum en hún er meðal vinsælustu hjólabúða landsins.
„Ég byrjaði með búðina fyrir nærri átta árum, rétt eftir að hér varð hrun og ég stóð uppi atvinnulaus. Mig langaði að vinna með hjól og því varð Kría Hjól til.“ segir David. Hann var einn með litla vinnustofu á annarri hæð úti á Granda og segist ekki mæla með því að reka hjólaverkstæði á annarri hæð.
David segir hlutina hafa breyst snögglega á síðustu tveimur árum og vinsældir hjólsins fari ört vaxandi. „Mér fannst fólk byrja að nota hjól eftir kreppu enda ódýr ferðamáti en í dag snýst þetta ekki bara um að spara bensín heldur er þetta orðið ákveðið sport. Það hefur svo góð áhrif á heilsuna að hjóla og fólk notar hjólið því líka í frítíma sínum.“ Þá hafi hjólanotkun betri áhrif á umhverfið en bíllinn.

„Það hefur alltaf verið mest að gera í maí og júní þegar fólk tekur hjólin út og byrjar að hjóla en það hefur reyndar breyst núna og svo virðist sem Íslendingar séu farnir að nota hjól allan ársins hring! Þegar ég var að byrja í þessu voru afar fáir Íslendingar sem hjóluðu að staðaldri en núna eru þeir fjölmargir.“
David segir vinsældir búðarinnar stafa af einlægum áhuga starfsfólksins á hjólreiðum. „Við Emil erum engir svakalegir bissnessmenn heldur deilum við sameiginlegum áhuga okkar á því að hjóla. Við teljum að kúnnarnir okkar séu ánægðir því við erum ekki að troða hjólum niður í kokið á þeim. Velgengni búðarinnar stafar af því að við byrjuðum á réttum tíma og erum áhugasamir.“ Til marks um það má nefna að búðin hefur flust úr 20 fermetra plássi á annarri hæð úti á Granda í tveggja hæða hjólreiðaverslun með sérstökum æfingasal sem bætist við búðina næsta vetur.
„Í sumar erum við tíu allt í allt sem vinnum hér og þegar mest er að gera lögum við um 20 hjól á dag. Feikinóg að gera. En við kvörtum ekki. Fögnum,” segir David að lokum.
The post Kría Hjól á miklu flugi appeared first on Fréttatíminn.