„Ég byrjaði að læra 16 ára,“ segir Halldór Guðbjörnsson sem hefur rekið skóvinnustofu í 52 ár eða allt frá því að hann lauk námi hjá Helga Þorvaldssyni á Barónsstíg. Hann lýsir vinnu sinni sem fjölbreyttri en í henni felast ýmiskonar viðgerðir á skóm, sólum og hælum, auk saumaskapar.„Fyrst var ég á Hrísateigi en á næsta ári hef ég verið á Sundlaugavegi í fjörutíu ár,“ bætir hann við.
Hann segir Íslendinga duglega að fara með skóna sína í viðgerð. „Já, já og það jókst mikið eftir hrun en er kannski að jafna sig aftur núna. Þetta fylgir alltaf tískunni, fer eftir því hvernig skótau er notað. Mjóir hælar hafa verið vinsælir í gegnum tíðina með sínum hæðum og lægðum. Þeir voru allsráðandi þegar ég var að læra og hafa verið vinsælir núna og síðastliðin ár. Þegar þeir eru í tísku er nóg að gera. Oft er talað um að skóvinna minnki þegar pinnahælarnir eru ekki í tísku,“ segir Halldór og hlær. Annars gerir hann við alls kyns skó á degi hverjum.

Hvað er skemmtilegast við vinnuna?
„Það er góð spurning. Ætli það sé ekki að hitta fólk en ég hef alltaf verið einyrki. Það koma auðvitað mikið hingað til mín vinir og kunningjar, og það gerir annars rólegan daginn fjörugri. Þegar maður er búinn að vinna svona lengi þá er vinnan ekkert alltaf sérstaklega skemmtileg.“
„Síðan hef ég eignast gríðarlega mikið af fastakúnnum í gegnum tíðina. Sumt fólk hefur fylgt manni í fimmtíu ár. Það verða bara vinir manns en síðan hverfa sumir, eins og gengur, þegar maður hefur unnið svona lengi. Þannig er lífið.“
The post Vinnustofan: Nóg að gera þegar mjóir hælar eru í tísku appeared first on Fréttatíminn.