Karlmaður á fertugsaldri var myrtur með hrottafengnum hætti í Stokkhólmi í byrjun vikunnar. Hann var læknanemi og lætur eftir sig tvö börn.
„Því miður, við höfum engan handtekið enn,“ sagði Mats Eriksson, upplýsingafulltrúi lögreglunnar í Stokkhólmi, en þar er til rannsóknar morðið á Jóni Gunnari Kristjánssyni, sem lærði meðal annars læknisfræði í Ungverjalandi árið 2013.
Jón var myrtur á mánudaginn síðasta en hann virðist hafa verið stunginn 14-15 sinnum með hníf. Blaðið fór í gegnum hjarta hans og varð honum að bana. Þá var hann einnig slegin með járnröri í höfuðið. Árásin átti sér stað á svæði í Stokkhólmi sem heitir Alkalla.
Aftonbladet skýrði frá því að svæðið sem Jón hefði verið myrtur á, væri ólöglegt tjaldsvæði þar sem heimilislaust fólk heldur til. Aðspurður hvort hverfið væri slæmt svaraði Mats; „Mér finnst það ekki, enda bý ég þarna nærri.“
Í Aftonbladet, og á DV.is, þar sem fyrst var greint frá málinu hér á landi, kom fram að vitni hefði séð til morðingjans. Þannig er því haldið fram að til átaka hafi komið eftir að morðinginn sagði eitthvað um dulkóðuð gögn.
Lögreglan segist engar upplýsingar hafa um þetta, og leita fleiri vitna. „Þá erum við að rannsaka hluti sem fundust á vettvangi, en það mun taka tíma,“ bætti hann við.
Sjónarvottur segir í viðtali við Aftonbladet að morðinginn hafi myrt Jón og gengið svo ískaldur af vettvangi. Skömmu eftir að Jón var stunginn reyndu nærstaddir lífgunartilraunir. Hann var svo fluttur á sjúkrahús þar sem hann var úrskurðaður látinn.
Mats segir að næstu skref lögreglunnar séu að leita fleiri vitna og klára rannsókn á vísbendingum sem fundust við vettvangsrannsókn. Samkvæmt lögreglu er ekkert sem bendir til þess að morðið tengist fíkniefnum. Þá verður einnig farið í það að kortleggja síðustu daga Jóns, en lögreglan vildi ekkert gefa upp um ferðir hans skömmu fyrir andlát.
Jón var 35 ára gamall þegar hann lést, en hann bjó nær alla sína ævi í Svíþjóð og var með sænskan ríkisborgararétt. Faðir hans er íslenskur og búsettur í Svíþjóð. Móðir Jóns er kínversk. Jón lærði til skamms tíma læknisfræði í Búdapest í Ungverjalandi. Hann lætur eftir sig tvö börn, þriggja ára son og fjögurra ára dóttur, að því er DV greindi frá.
The post Var læknanemi og tveggja barna faðir appeared first on Fréttatíminn.