„Ég hef enga trú á því að þessi einkaspítali í Mosfellsbæ verði að veruleika, en það er bara mín persónulega skoðun, segir Leifur Bárðarson, settur landlæknir um fréttir af fyrirhuguðum framkvæmdum við einkasjúkrahús á stærð við Landsspítalann.
Hann segir að það sé fyrst og fremst pólitísk ákvörðun heilbrigðisráðherra hvort leyfa eigi slíkar framkvæmdir. Landlæknir veiti svo umsögn á einhverju stigi um hvort reksturinn standist íslenskar kröfur. „Þetta er stór pólitísk ákvörðun, slíkur spítali myndi hafa gríðarleg áhrif á íslenska heilbrigðisþjónustu. Þarna yrðu starfandi hundruð lækna og heilbrigðisstarfsfólks. Það þarf því eitthvað undan að láta, Það væri í hæsta máta óeðlilegt ef heilbrigðisyfirvöld hefðu ekki á því skoðun, það er ekki verið að tala um búðarholu.“
Leifur bendir á að þetta sé í fimmta sinn sem áform séu upp um slíka einkaspítala og hingað til hafi þau gufað upp. “Það eru svona sjúkrahús um allan heim, til dæmis í Bandaríkjunum, sem gera út á ríkt fólk. Það er ekkert sem gerir Ísland sérstaklega eftirsóknarvert fyrir svona spítala. Það er ekki verið að finna upp hjólið.”
Vigdís segist ekki vera hrifin
Vigdís Hauksdóttir formaður fjárlaganefndar segir að hugmyndin hafi augljóslega fengið vængi þegar tilskipun ESB var innleidd í ríkjum sambandsins auk EES ríkjanna því rætt sé um að sjúklingarnir komi aðallega frá Evrópu. Tilskipunin gerir ráð fyrir að fólk eigi rétt á að sækja sér heilbrigðisþjónustu í löndum EES og fá kostnaðinn endurgreiddan.
Vigdís segist vera mótfallin því að þessi rekstur fái ríkisívilnanir hér á landi . “Því að öllum líkindum verður ekkert af starfsfólkinu með heimilsfesti hér á landi og borgar því skatt í heimalöndum sínum en ekki hér,” segir hún. Ekki náðist í Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra.
The post Stór pólitísk ávörðun að reisa einkaspítala appeared first on Fréttatíminn.