Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Innlit: Hófst allt í tveimur fermetrum bílskúrsins

$
0
0

Hafsteinn og Guðrún Agla stofnuðu Happie Furniture þegar gestir fóru að bjóða í sérsmíðaða eldhúsborðið þeirra. Á einu ári flutti verkstæðið úr litlum bílskúr í húsnæði úti á Granda. Það er ekki aðeins reksturinn sem stækkar heldur fjölskyldan líka og byggja þau draumahúsið sitt við Hafravatn.

„Ætli þetta hafi ekki verið tveir til þrír fermetrar af gólfplássi í bílskúrnum sem við nýttum til þess að smíða fyrstu borðin. Við unnum okkur upp í loft og út á bílaplan. Stundum var maður búinn að olíusparsla sig út í horn og dúsaði þar á meðan plöturnar þornuðu.“
Þannig lýsa þau Guðrún Agla og Hafsteinn Helgi fyrstu mánuðum fyrirtækisins Happie Furniture. Saman láta þau draumaborð sérhvers kúnna verða að veruleika þar sem sköpunargleðin ræður ríkjum.

27975_happy_furniture-6

Matjurtakassar upphafið

Guðrún Agla stundar nám í arkitektúr og hefur yfirumsjón með hönnun ásamt Hafsteini sem er sjálflærður framkvæmakrafturinn á bakvið Happie Furniture. Það er síðan engin önnur en Dís, átta mánaða dóttir unga parsins, sem er forstjóri fyrirtækisins. Á vorin hef ég smíðað matjurakassa og fundið heimili fyrir þá í gegnum Facebook. Þannig varð ég kunnugur mætti samfélagsmiðla,“ útskýrir Hafsteinn. „Við smíðuðum okkur eldhúsborð og þegar gestir komu í heimsókn fékk borðið mikla athygli og enduðu gestirnir gjarnan á því að taka borðið með sér heim. Við smíðuðum svo nýtt og það var aftur sama sagan. Þá sáum við að það væri mögulega eitthvað í þessu.“

27975_happy_furniture-1

Taka einn dag í einu

Á skömmum tíma hafði bílskúrinn sprungið utan af rekstrinum. Þeim stóð til boða að færa verkstæðið og deila húsnæði með Artic Surfers úti á Granda. Hafsteinn segir þau hafa hugsað málið vel. „Við vildum gæta þess að fara ekki of geyst af stað og fara fram úr sjálfum okkur. Við viljum stækka með fyrirtækinu og mikil eftirspurn er aðeins lúxusvandamál.“ Guðrún Agla er sammála. „Það er ákveðinn sjarmi yfir því að taka bara einn dag í einu, njóta þess að smíða hvert borð fyrir sig og kynnast skemmtilegu fólki um leið. Við erum mjög þakklát og þykir yndislegt að geta unnið við það sem við elskum að gera.“

 

Ástríða Hafsteins hefur alltaf verið að smíða. „Alveg frá því hann var krakki,“ segir Guðrún Agla sem hefur mikla trú á sínum manni. „Hann hefur alltaf verið ákveðinn í að geta lært nýja hluti og verið óhræddur við að prófa sig áfram.“ Haffi segist nýta sér tækni nútímans og visku annarra. „Ég nýti mér Youtube, Google og ímyndunaraflið. Síðan er alltaf hægt að fara í Byko og tala við þann sem hefur unnið þar lengst, sá kann öll trikkin í bókinni.“27975_happy_furniture-8

Byggja draumahúsið

Um þessar mundir er litla fjölskyldan að byggja sér hús við Hafravatn, í Bláberjabrekkum eins og þau kalla það. „Það er allt morandi í bláberjum núna,“ segir Hafsteinn. „Um leið og Dís fæddist fórum við að hugsa um hvernig heimili og minningar við viljum skapa fyrir hana. Þegar við hugsum um æskuna þá kemur náttúran upp í hugann, sumarið, útilegur og berjamór. Í okkar huga eru það mikil forréttindi að vera í góðri tengingu við náttúruna og alast upp á svona stað hlýtur að hafa ekkert nema jákvæð áhrif.“

Fjölskyldan ætlar að gefa sér tíma í að byggja húsið og innrétta samkvæmt Guðrúnu Öglu. „Við ætlum að smíða húsgögnin sjálf. Við erum með sófa og stóla á teikniborðinu en við höfum ekki haft undan í rekstrinum að smíða fyrir okkur sjálf. Við ætlum að gefa okkur tíma til að þróa nýjar vörur og njóta þessa að vera fjölskylda í Bláberjabrekkunum.“

 

The post Innlit: Hófst allt í tveimur fermetrum bílskúrsins appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652