Íbúafjöldi Laugabakka fjórfaldast um helgina þegar rokkarar og pönkarar koma saman á jaðarhátíðinni Norðanpaunk.
„Hugmyndin varð til við bjórdrykkju á Dillon þar sem við hittumst nokkur og veltum fyrir okkur hvað hefði orðið af þessari sterku pönkmenningu sem var til á tíunda áratugnum, og af hverju það væri ekkert í boði fyrir pönkara og rokkara um Verslunarmannahelgina,“ segir Árni Þorlákur, en hann tilheyrir tuttugu manna hópi skipuleggjenda jaðarhátíðarinnar Norðanpaunks sem fer fram í þriðja skipti um helgina.
Árni er sonur prestsins á Laugabakka og ákvað að leita á sínar heimaslóðir með að halda nýja jaðarhátíð, enda er félagsheimili á staðnum þar sem Árni vissi að oft væru haldin ættarmót.
„Þetta er eins og ættarmót þar sem þáttakendur sjá um skemmtiatriðin sjálfir. Á ættarmót mætir alltaf fjölbreyttur hópur fólks og margir skrýtnir, alveg eins og á Norðanpaunk,“ segir Árni glettinn og bætir við að börn og unglingar séu velkomin á hátíðina séu þau með viðeigandi heyrnarvernd.
„Ef þetta verður of vinsælt bætum við bara við nokkrum „Noise“-hljómsveitum!“
Norðanpaunki hefur verið vel tekið af íbúum Laugabakka, en þeir telja um hundrað manns. Á meðan á Norðanpaunki stendur hækkar íbúatalan um þrjú hundruð manns. Hátíðin stækkar því Laugabakka töluvert, en hátíðin er þó lítil miðað við aðrar útihátíðir, eins og jaðarmenningu sæmir. Vinsældir Norðanpaunks fara vaxandi og byrjar dagskráin í ár fyrr en venjulega svo hægt sé að koma fyrir fleiri hljómsveitum. Eins og hópurinn bendir á er það alltaf ákveðið vandamál fyrir jaðarhátíðir. „Við verðum að passa okkur að hafa það erfiðar hljómsveitir að fjöldinn fari ekki yfir þrjú hundruð manns,“ segir Hilmar, annar úr hópnum, „og ef þetta verður of vinsælt bætum við bara við nokkrum „Noise“-hljómsveitum!“
Þetta árið koma fram hljómsveitir á borð við Misþyrmingu, DJ Flugvél og Geimskip, Q4U og sænsku hljómsveitina Martyrdöd, allt frá svartmálmi til elektrópönks. „Þó tónleikarnir séu stærsti dagskrárliðurinn er tónlistin bara ein birtingarmynd jaðarmenningar á hátíðinni,“ segir Árni. „Það verður smiðja á staðnum þar sem fólk getur gert myndlist eða hvað sem það vill, auk þess sem Jón Arnar, Kristófer Páll og Karl Thorsten Stallborn verða með myndlistarsýningu og ég geri bakgrunn fyrir sviðið okkar,“ segir Ólöf Rún, enn einn skipuleggjandi hátíðarinnar.

Þrátt fyrir að skipulagshópurinn sé orðinn ansi stór gengur samstarfið vel, enda gengur hátíðin út á svokallaða „do-it-yourself“ hugmyndafræði og að allir hjálpist að við alla þætti hátíðarinnar, allt frá uppvaski til þess að halda uppi stemningu. „Við erum öll í þessu saman,“ segir hópurinn, enda byggist hátíðin á sjálfboðavinnu því enginn í hópnum fær laun fyrir störf sín. Hátíðin tekur jafnframt skýra afstöðu gegn ofbeldi, og verði einhver uppvís að slíkri hegðun verður þeirri manneskju tafarlaust vísað af svæðinu. Norðanpaunk á nefnilega að vera samfélag þar sem allir finna til öryggis.
Þungarokks- og jaðartónlistarsenan á Íslandi er í miklum vexti og segist Ólöf sérstaklega hafa tekið eftir að hún hafi stækkað síðustu ár. Hljómsveitir eins og Misþyrming og Svartidauði hafa borið hróður íslensks svartmálms út í heim: „Ég held reyndar að vinsældir þessara sveita úti í heimi hafi mikið að segja um hvaða tækifæri þær fá hér á landi,“ segir Ægir Sindri, fjórði meðlimur hópsins. Nú fái Misþyrming sem dæmi pláss á tónleikastöðum sem ekki eru sérstaklega ætlaðir svartmálmi og fleiri mæti á tónleikana en harðkjarna þungarokkarar.
„Þetta er eins og ættarmót þar sem þátttakendur sjá um skemmtiatriðin sjálfir. Á ættarmót mætir alltaf fjölbreyttur hópur fólks og margir skrýtnir, alveg eins og á Norðanpaunk,“
Þrátt fyrir mikla grósku segir hópurinn ekki mikla nýliðun inn í senuna, enda sé skortur á tónleikum sem fólk undir tvítugu megi sækja. „Við köllum eftir tónleikastöðum þar sem fólk á öllum aldri er velkomið,“ segir Árni. Ægir segir jafnframt að þó tónleikastaðir á borð við Molann í Kópavogi haldi af og til jaðartónleika mæti þá fáir, enda þurfi senan að vera í stöðugri þróun en ekki bara af og til.
Á Norðanpaunki mun þróunina þó ekki vanta: „Markmiðið er að á Norðanpaunki séu framkvæmdir hlutir sem ekki er hægt að framkvæma á hefðbundnum tónleikastað“, segir Árni.
„Fyrir Norðanpaunk hefði maður skilið vel að þessi hópur hefði flúið land um verslunarmannahelgina, enda var engin hátíð sem okkur fannst spennandi að sækja þessa helgi,“ segir Ólöf. Nú hlakkar jaðarfólkið hins vegar til helgarinnar – rétt eins og allir hinir.
Frekari upplýsingar og miða á hátíðina má nálgast á nordanpaunk.org
The post Við erum öll í þessu saman appeared first on Fréttatíminn.