Nítján ára piltur, sem er grunaður um að hafa nauðgað tveimur stúlkum, hefur kært gæsluvarðhaldsúrskurð yfir sér. Fréttatíminn greindi fyrst frá málinu í gær en þar kom fram að pilturinn er sakaður um að hafa nauðgað tveimur 15 ára stúlkum með viku millibili. Í fyrra skiptið var piltinum sleppt úr haldi, en ekki var farið fram á gæsluvarðhald yfir honum. Viku síðar var hann handtekinn aftur vegna gruns um nauðgun.
Að sögn skipaðs verjanda piltsins, Unnars Steins Bjarndal, fór lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu fram á að gæsluvarðhald yfir piltinum yrði framlengt um mánuð, eða til 2. september. „Héraðsdómur féllst ekki á það, en úrskurðaði hann í gæsluvarðhald til 19. ágúst. Lögreglustjóri krafðist þessa á grundvelli almannahagsmuna en telur ekki lengur þörf á gæsluvarðhaldi á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Umbjóðandi minn kærði úrskurðinn til hæstaréttar og niðurstaðan mun liggja fyrir í fyrri hluta næstu viku,“ segir Unnar Steinn.
Í tilkynningu frá lögreglu segir að rannsókn málsins gangi vel.
The post Grunaður nauðgari áfram í gæsluvarðhaldi appeared first on Fréttatíminn.