Hleðsla – hollur og handhægur íþróttadrykkur
Hlauparar þekkja það vel að til að ná árangri er nauðsynlegt að huga vel að mataræði og næringu því það getur reynst erfitt að koma sér í gott líkamlegt form og auka þol ef við hugum ekki að því sem við látum ofan í okkur. Við getum stritað og púlað en ef við hugsum ekki um hvað við borðum og drekkum eru töluverðar líkur á því að hreyfingin skili ekki þeim árangri sem við vonumst eftir. Ef stefnan er að ná góðum og varanlegum árangri er mikilvægt að ná góðu jafnvægi milli mataræðis og hreyfingar og hafa það hugfast að ein óholl máltíð skemmir ekki neitt, rétt eins og ein holl máltíð breytir ekki miklu. Lykillinn að jafnvæginu er að endurtaka góðar og hollar ákvarðanir á kostnað hinna óhollu og hafa það ætíð hugfast að góð heilsa og gott líkamlegt form er ekki áfangastaður eða einhver endapunktur, heldur lífsstíll sem við viljum temja okkur til að vera betur í stakk búin til að takast á við lífið í öllum sínum margvíslegu myndum.

Íþróttadrykkurinn Hleðsla er ferskur og bragðgóður próteindrykkur frá MS sem kom fyrst á markað fyrir um 6 árum síðan. Neytendur tóku vörunni vel frá byrjun og hentar hún bæði fljótlega eftir æfingar og á milli mála. Á síðasta ári bættust við nýjungar í vörulínuna og er um að ræða kolvetnaskertar og laktósafríar Hleðslur í venjulegri fernu og fernu með tappa. Að sögn Björns S. Gunnarssonar, næringarfræðings og vöruþróunarstjóra MS, er kolvetnaskerta Hleðslan „gædd öllum þeim eiginleikum sem forveri hennar hefur, til að mynda inniheldur hún 22 g af hágæða próteinum, en til viðbótar hefur verið dregið úr kolvetnainnihaldi með því að notast við sætuefnið súkralósa í stað agaveþykknis.
Til viðbótar hefur allur laktósinn, þ.e. mjólkursykurinn, verið klofinn, sem þýðir að kolvetnaskert og laktósafrí Hleðsla hentar vel fólki með laktósaóþol og öðrum þeim sem finna til óþæginda í meltingarvegi við neyslu mjólkurvara, auk þess sem varan er kjörin fyrir þá sem vilja draga úr neyslu kolvetna.“ Þess ber að geta að sífellt er unnið að vöruþróun tengdri Hleðslu línunni og verður spennandi að fylgjast með framhaldinu.
Hleðslan hentar mjög eftir góða hlaupaæfingu og sem millimál, en drykkurinn er bæði hollur, handhægur og á sama tíma einkar bragðgóður.
Við hlökkum til að hitta ykkur á FIT & RUN sýningunni fyrir Reykjavíkurmaraþonið og óskum hlaupurum
maraþonsins góðs gengis.
Unnið í samstarfi við MS
The post Frábær hleðsla fyrir líkamann eftir góða hlaupaæfingu appeared first on Fréttatíminn.