Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Mikið um dýrðir á 70 ára afmæli Hveragerðis

$
0
0

Blómstrandi dagar verða í veglegri kantinum í ár.

Blómstrandi dagar í Hveragerði standa nú sem hæst og verður ekkert lát á gleðinni fyrr en annað kvöld. Hátíðin er í veglegri kantinum í ár í tilefni 70 ára afmælis Hveragerðis en að sögn Aldísar Hafsteinsdóttur bæjarstjóra var ákveðið að setja allan aurinn í glæsilega dagskrá í stað þess að halda hátíðarkvöldverð fyrir boðsgesti, eins og stundum tíðkast við þess lags tilefni.

Brekkusöngur Ingó veðurguð stjórnar brekkusöng í kvöld.
Brekkusöngur Ingó veðurguð stjórnar brekkusöng í kvöld.

Hillary-ís og Trump-ís

Viðburðirnir eru nánast óteljandi en einna stærstur er Ísdagur Kjöríss en hann dregur alltaf þúsundir að. „Enda hvergi nokkurs staðar annars staðar á byggðu bóli sem þú getur komið og borðað eins mikið af ís og þú getur í þig látið á þremur klukkutímum,“ segir Aldís. Fleiri tugir tegunda íss verða í boði og í ár er forsetaþema þannig að hægt verður að gæða sér á Hillary-ís, Trump-ís og Guðna-ís, svo dæmi séu tekin. Kjörís setur líka frystikistur vítt og breitt um Hveragerði og býður bæjarbúum upp á ís allan daginn. „Hveragerði er auðvitað blómabærinn en við erum líka höfuðborg íssins á Íslandi,“ segir Aldís.

Blómardrottning. Aldís Hafsteinsdóttir,  bæjarstjóri Hveragerðis.
Blómardrottning. Aldís Hafsteinsdóttir,
bæjarstjóri Hveragerðis.

Listamannanýlenda

Aldís hvetur fólk til þess að koma og leggja bílnum, rölta um bæinn og njóta þess sem í boði er. „Það eru sýningar, opnar vinnustofur út um allan bæ, tónlist og markaðir víða. Fjölmargir íbúar verða með bílskúrssölur en síðan verður einnig skottsala á planinu við leikfélagshúsið, þar sem allir eru velkomnir. Ekki má heldur má gleyma fjölmörgum tónleikum og viðburðum þar sem allir ættu geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Það verður einnig hægt að fara í bíltúr um bæinn í gömlum Víbon með leiðsögn þar sem farið er yfir sögu bæjarins og rifjað upp hverjir upphaflega byggðu Hveragerði. „Hveragerði er sá bær á Íslandi sem hvað næst því hefur komist að vera listamannanýlenda. Bæði byggðist hann upp af listamönnum í upphafi og listamenn hafa ávallt verið mjög áberandi í bæjarlífinu,“ segir Aldís.

Ís fyrir alla Kjörís gefur allan þann ís sem torgað verður.
Ís fyrir alla Kjörís gefur allan þann ís sem torgað verður.

Alflottasta flugeldasýningin

Í brekkusöngnum í kvöld verður flugeldasýning sem á sér vart hliðstæðu, að sögn Aldísar. „Hún verður stærri kantinum í tilefni af afmælinu og hefur nú mörgum þótt nóg um hingað til! Ég veit að það segjast allir vera með flottustu flugeldasýninguna en bæjarbúar halda því margir hverjir fram að þetta sé sú alflottasta! Þetta er þvílíkt sjónarspil í Varmárgilinu og svo drynur í fjöllunum hérna í kring. Ég hugsa að hávaðinn heyrist niður í Þorlákshöfn,“ segir Aldís. Í brekkusöngnum verður einnig frumflutt lag Hljómlistafélags Hveragerðis sem er gjöf þess til bæjarbúa á þessum tímamótum. Ágústa Eva, Magnús Þór Sigmundsson, Páll Rósinkrans, Mánar, Unnur Birna og fleiri tónlistarmenn flytja lagið sem þykir einstaklega vel heppnað. Á morgun, klukkan 14, verður síðan afmæliskaka í boði fyrir alla sem vilja í Lystigarðinum undir ljúfum djasstónum og eru allir hvattir til að grípa með sér teppi og eiga þar góða stund.

Unnið í samstarfi við Hveragerðisbæ.

The post Mikið um dýrðir á 70 ára afmæli Hveragerðis appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652