Í samtali við Fréttatímann segir Guðrún að hún vilji ekki tjá sig um starfslok sín eða fyrirætlanir sínar á bókamarkaði. Jón Kalman segir sömuleiðis að hann vilji ekki tjá sig um málið að svo stöddu. Ekki náðist í Auðu Övu. Jón Kalman hefur gefið út 11 skáldsögur á 20 árum undir merkjum Bjarts á meðan Auður Ava hefur gefið út eina bók hjá forlaginu.
Guðrún Vilmundardóttir hafði unnið hjá Bjarti í tíu ár en eigandi fyrirtækisins er Pétur Már Ólafsson. Pétur Már á líka forlagið Veröld og hefur rekið það ásamt Bjarti í sama húsnæði á Bræðraborgarstígnum. Bjartur hefur sérhæft sig í útgáfu fagurbókmennta, íslenskra og þýddra, á meðan Veröld hefur að mestu einbeitt sér að útgáfu ævisagna, fræðirita og rita almenns eðlis.
Eitt af því sem mun hafa valdið deilum í samskiptum Guðrúnar og Péturs Más var að í fyrra neitaði hún að gefa út bókina Endurkomuna eftir Ólaf Jóhann Ólafsson undir merkjum Bjarts og var bókin á endanum gefin út hjá Veröld í staðinn. Einhver faglegur ágreiningur var því til staðar þó ástæður starfslokanna séu ókunnar.
Pétur Már vill ekki tjá sig um starfslok Guðrúnar eða ákvarðanir Jóns Kalmans og Auðar Övu.
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
The post Á náttborðinu: Bók sem sameinar nördin í mér appeared first on Fréttatíminn.