Chloë er vel þekkt innan kvikmyndaheimsins, en hún var uppgötvuð á götum New York þegar hún var unglingur. Þá lék hún í kvikmyndinni Kids, og öðlaðist heimsfrægð í kjölfarið. Chloë var svo tilnefnd til Óskarsverðlauna og Golden Globe fyrir leik sinn í kvikmyndinni Boys Don´t cry árið 1995. Hún hreppti hvorug verðlaunin þá, en fékk þau þó nokkru síðar Golden Globe fyrir bestu leikkonuna í aukahlutverki í þáttunum Big Love.
Chloë hefur ekki síður vakið athygli í tískuheiminum og hefur starfað bæði sem fatahönnuður og fyrirsæta. Leikkonan mun dvelja hér á landi í fimm daga en hún mun verða viðstödd sýningu myndar sinnar og sitja fyrir svörum á eftir.




