„Við erum búin að vera inni í hugmyndaherberginu síðan í október í fyrra. Handritsskrifin byrjuðu nú í vor eftir að vorum búin að þróa konseptið og hugmyndina,“ segir leikstjórinn Baldvin Z um nýja sjónvarpsþáttaröð sem hann er að skrifa ásamt Andra Óttarssyni.
Þættirnir bera vinnuheitið The Trip og fjalla um það þegar barni ungs íslensks pars er rænt á erlendri grundu. Stefnt er að því að þeir verði 10-13 talsins og að frumsýning verði eftir 2-3 ár. Sjónvarp Símans hefur þegar tryggt sér sýningarréttinn.
Baldvin skrifar þættina ásamt áðurnefndum Andra Óttarssyni, sem getið hefur sér gott orð fyrir handritsskrif í sjónvarpsþáttunum Rétti. Þeir tveir hafa stofnað nýtt fyrirtæki um gerð þáttanna ásamt framleiðandanum, Arnbjörgu Hafliðadóttur, sem er sjóuð í bransanum og hefur framleitt á annan tug bíómynda og sjónvarpsþáttaraða fyrir Sagafilm. Fyrirtækið kallast Glassriver og sækir nafn sitt til Glerár sem rennur í gegnum Akureyri, heimabæ Baldvins.
Baldvin og Andri eru þessa dagana á kafi í handritsskrifum. Leikstjórinn er spar á yfirlýsingar þó augljóst sé að um mjög stórt verkefni sé að ræða. „Jú, þetta er mjög umfangsmikið verkefni enda gerist serían á fleiri stöðum en Íslandi. Þetta er stór saga og planið er að gera þrjár þáttaraðir af þessu. Í fyrstu þáttaröðinni verða 10-13 þættir, kannski tíu þættir með löngum fyrsta þætti og löngum lokaþætti. En við tökum þessu öllu mjög rólega, það er langur vegur framundan.“

Eftir það hefur Baldvin leikstýrt þremur þáttum af Ófærð og níu þáttum af Rétti. Á afrekalistanum eru líka handritsskrif fyrir sjónvarpsþættina Hæ gosa og áramótaskaupið 2011.
Auk The Trip, sem hér er til umfjöllunar, vinnur Baldvin nú að heimildarmynd um Reyni Örn Leósson, Reyni sterka. Þá hefur hann skrifað handrit að nýrri kvikmynd í félagi við Birgi Örn Steinarsson, Bigga í Maus, sem einmitt skrifaði Vonarstræti með honum. Sú mynd kallast Kontalgínbörnin. Þá er á teikniborðinu barnamyndin Víti í Vestmannaeyjum, eftir samnefndri bók Gunnars Helgasonar.