Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Fitufordómar: Auðveldara að vera feit ef þú ert kvenleg og sæt

$
0
0

„Þetta eru oftast ómerkilegir litlir hlutir sem maður pælir ekkert í en svo þegar þetta safnast saman þá finnur maður að það er allt í fitufordómum. Fólk hefur til dæmis kommenterað á það hvað ég er með á færibandinu í Bónus. Hvað er fólk eiginlega að pæla í því hvað eða hversu mikið ég er að borða,“ spyr Setta María og hlær að vitleysunni. „Ég gæti allt eins verið á leið heim til tólf manna fjölskyldunnar minnar með matinn.“
„Ég hef verið grennri og hef því fundið hvernig viðmótið er annað gagnvart feitum og grönnum. Eitt sem mér finnst áhugavert er kynferðisleg áreitni á djamminu. Hún hefur ekki orðið minni eða meiri en hún varð miklu ágengari eftir að ég fitnaði. Ég fæ svo rosalega hörð viðbrögð við höfnun, eins og ég sé alveg hrikalega dónaleg að láta mér detta í hug að hafna fólki því ég er feit. Fólk verður bara mjög reitt og segir að ég sé feit tussa og álíka viðbjóðslega hluti.“
„Ég hef líka upplifað að það sé ásættanlegra fyrir mig að vera feit ef ég er líka kvenleg,“ segir Setta María sem er ötul baráttukona fyrir réttindum samkynhneigðra og hefur í gegnum tíðina leikið sér að kynjuðum staðalímyndum með útliti sínu. „Mér finnst fólk vera óvinalegra ef ég er ekki stelpuleg, það er eins og það sé meira ásættanlegt að ég sé feit ef ég er sæt og mála mig. Því færri norm sem þú brýtur því auðveldara verður lífið. Ef þú ætlar að vera feit þá verður þú að minnsta kosti að reyna að vera sæt.“
Þegar Setta María lendir í því að vera fitusmánuð segir hún það hjálpa að nota samfélagsmiðla til að varpa ljósi á fáránleikann. „Sumt fók er auðvitað bara ruglað og maður á bara að leiða þetta hjá sér. En svo finnst mér ekki alltaf hjálpa að leiða hlutina hjá sér. Þegar ég skrifa um þessa hluti á facebook finn ég hvað fólk verður hissa að heyra í hverju maður lendir og líka hissa á því hvað ég lendi oft í skrítnum hlutum. En ég held það sé ekki svo óalgengt, fólk bara talar ekki nógu mikið um þetta. Fólk á bara að standa upp og tjá sig.“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652