Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Útilegur, þjóðhátíð og Blikaleikir í sumar.

$
0
0

Ólafur Ásgeir Jónsson er 21 árs Kópavogsbúi sem vinnur sem sölumaður hjá Nova virka daga en stendur vaktina á FM957 um helgar. Hann er mikill Netflix-maður og er gallharður stuðningsmaður Breiðabliks. Hann fer oft í bíó en veit stundum ekkert á hvaða mynd hann er að fara.

„Ég er að vinna hjá Nova við það að selja síma og um helgar er ég á FM957. Ég er milli 13 og 16 á laugardögum og frá 14 til 18 á sunnudögum. Ég hef verið þar í eitt ár núna og hef mjög gaman af. Þess á milli fer ég í golf.“

Staðalbúnaður
„Ég er mikið í svörtum gallabuxum. Það eiga allir strákar svartar gallabuxur. Mikið af Converse skóm. Ég á æðislega mikið af Converse skóm. Svo finnst mér líka gott að vera í Nike Free Run eins og allir eiga. Mér finnst rosalega gaman að klæða mig upp á og vinir mínir þola það ekki þegar þeir þurfa að bíða eftir mér þegar við erum að fara eitthvað. Ég máta yfirleitt allan fataskápinn þegar ég er að fara eitthvað. Ég er alger kvenmaður þegar kemur að þessu og viðurkenni það bara fúslega. Ég er eins og flestir aðrir Íslendingar og versla mest af fötunum mínum erlendis, en hérna heima fer ég þó reglulega í Herragarðinn, Kúltúr og Levi´s búðina.“

Hugbúnaður
„Ég á racer reiðhjól og hjóla mjög mikið. Ég fer mikið í golf og svo eyði ég rosalega miklum tíma með Kristínu Rut systur minni sem vinnur með mér á FM. Ég er rosalega lítill kaffihúsamaður og fer frekar eitthvað út í sveit en að hanga á kaffihúsi. Þegar ég fer að djamma með vinunum þá er það B5 sem verður alltaf fyrir valinu. Mér finnst American Bar líka skemmtilegur. Ég horfi mikið á Netflix og horfi mikið á heimildarmyndir, þó ég viti kannski ekkert rosalega mikið. Ég er að klára Sons of Anarchy núna og mér finnst það frábærir þættir og líka Breaking Bad. Ég fer reglulega í bíó með strákunum og einn vinur minn er mikill iMDB maður og hann fær yfirleitt að ráða á hvaða myndir við förum. Stundum veit ég ekkert á hvaða mynd ég er að fara þegar ég sest í sætið. Ég veit bara að ef hann segir myndina góða þá hlýtur hún að vera góð. Ég er Arsenal-maður og Bliki og ég fylgist miklu meira með íslenska boltanum en þeim enska. Ég mæti á alla Blikaleiki og er í stuðningsmannasveitinni Kópacabana.“

Vélbúnaður
„Ég er með Macbook Pro og iPhone 6+ og er alger Apple maður. Ég gæti ekki bjargað lífi mínu í Windows og PC. Ég hef mjög gaman af Instagram og er svona nýbyrjaður á Twitter (@olafurasgeir), sem mér finnst skemmtilegt. Svo er ég mikið flugnörd og skoða Flight Radar 24. Þar finnst mér gaman að fylgjast með flugumferð. Svo er það Golfshot fyrir golfið og Strava fyrir hjólið. Það er líka hægt að nota það í hlaup en ég er minna í því.“

Aukabúnaður
„Pabbi minn á sumarbústað í Skorradal og þar finnst mér best að vera. Hann á sér það leyndarmál að vera besti kokkur sem ég veit um. Allt sem hann gerir er gott. Annars er ég mikill aðdáandi heimilismatar og finnst mjög gott að fá kjöt í raspi hjá mömmu, með Bernaisesósu. Það er ávísun á góðan mat. Ég er alveg laus við það að lesa bækur og hef ekki komist upp á lag með það. Ég ætla að taka sumarfríið mitt í nóvember og fara til Flórída með systur minni og vinum okkar. Við ætlum að keyra þar um og hafa það gott. Ég ákvað að taka ekki frí fyrr en Pepsideildin klárast í október. Annars ætla ég í útilegur og á þjóðhátíð í sumar. Svo ætla ég á torfærukeppni í ágúst og nýta þetta stutta sumar sem er eftir hjá okkur. Ég er á því að sumarið sé búið eftir menningarnótt í Reykjavík.“

The post Útilegur, þjóðhátíð og Blikaleikir í sumar. appeared first on FRÉTTATÍMINN.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652