Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Evrópustofu lokað

$
0
0

Samningur um rekstur Evrópustofu rennur út í lok ágúst. Þar sem engar ráðstafanir hafa verið gerðar um framhald gæti Evrópustofu verið lokað í september. En nýtt útboðsferli hefði þurft að hefjast fyrir meira en hálfu ári til að því yrði lokið í haust. Þessu greindi RÚV frá.
Dóra Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Evrópustofu, sagði í samtali við RÚV að þetta væri frágengið. Um áramótin var ljóst að ekki yrði framlengt. Hún segir að verið sé að undirbúa lokun stofunnar með því að draga smám saman úr kjarnaverkefnum.

The post Evrópustofu lokað appeared first on FRÉTTATÍMINN.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652