„Ég tók þá ákvörðun þegar ég gerði bílinn upp að ég myndi nota hann, að þetta yrði ekki neinn sunnudagsbíll. Þannig að nú er íþróttataskan í skottinu og drasl í aftursætinu,“ segir Guðfinnur Einarsson um forláta Mercedes Benz bíl sinn.
Aðeins keyrður sex mánuði á ári
Guðfinnur ekur um á Benz 280 E frá árinu 1980 sem hefur verið í eigu fjölskyldu hans frá upphafi og Guðfinnur gerði upp fyrir skemmstu.
Bíllinn var upphaflega í eigu afa og ömmu Guðfinns. Afi hans og nafni var framkvæmdastjóri í Bolungarvík og amma hans heitir María Haraldsdóttir. Eftir fráfall Guðfinns eldri árið 2000 tók sonur hans, Einar K. Guðfinnsson, fráfarandi forseti Alþingis, við bifreiðinni en árið 2007 var svo komið að Guðfinni yngri.
Mjög sterkar hefðir hafa fylgt Benz-inum frá því Guðfinnur tók við honum. „Ég tek bílinn út 17. apríl sem er afmælisdagur Maríu ömmu sem átti bílinn. Ég sæki hana á afmælisdaginn og við förum í bíltúr og fáum okkur kaffi. Svo fer bíllinn inn 17. október en það var afmælisdagur Guðfinns afa míns. Ég fylgi þessum dagsetningum alveg. Þegar við vorum að gera bílinn upp þá var það alveg skýrt að hann skyldi vera tilbúinn 17. apríl. Menn voru bara að líma númeraplötuna á daginn fyrir.“

Var orðinn illa ryðgaður
Guðfinnur ákvað í byrjun árs 2013 að gera bílinn upp en það þótti löngu tímabært.
„Bíllinn sjálfur var í góðu ásigkomulagi, hann var bara orðinn illa ryðgaður og farinn að morkna. Þetta var því mikil ryðbætingarvinna og sprautun,“ segir Guðfinnur sem segir að sitt hlutverk í endurbótunum hafi að mestu falist í því að útvega varahluti. Að öðru leyti hafi hann notið aðstoðar annarra.
„Þetta voru allt original varahlutir, nýir og ónotaðir. Bíladoktorinn Rúnar var mér innan handar við það. Þetta tók allt í allt rúmlega ár og það var furðulítið óvænt sem kom upp á,“ segir Guðfinnur sem kveðst ekki sjá eftir því að hafa ráðist í kostnaðarsamar endurbætur á bílnum.
„Heldur betur ekki, þetta er eitt ánægjulegasta verkefni sem ég hef tekið þátt í.“
Ætluðu að panta vínrauðan bíl
Afi og amma Guðfinns sóttu bílinn til Reykjavíkur árið 1980. Þau töldu sig vera að sækja vínrauða þýska glæsikerru en fyrir misgáning hafði verið pantaður einn appelsínugulur. Segir Guðfinnur yngri að sumir í fjölskyldunni hafi vart getað sér á heilum tekið yfir þeim skiptum og jafnvel hafi verið rætt um að selja bílinn. Afi hans hafi þó tekið tíðindunum með ró og úr varð að appelsínuguli Benzinn hefur fylgt fjölskyldunni æ síðan. Upphaflega var skráningarnúmer hans Í 130 en það er nú einkanúmer Maríu Haraldsdóttir, ömmu hans. Guðfinnur yngri fékk í staðinn númerið Í 3 á Benzinn, en það var á sínum tíma númerið á bíl langaafa hans, Einars Guðfinnssonar athafnamanns í Bolungarvík.
„Ég náði með því að tengja þennan bíl við fjórar kynslóðir,“ segir Guðfinnur stoltur.






Bíllinn vekur mikla athygli
Aðspurður segir Guðfinnur að bíllinn veki mikla athygli hvert sem hann fer. „Það líður varla dagur án þess að einhver veifi til manns í umferðinni og reglulega gefur fólk sig á tal við mig á förnum vegi. Það eru til dæmis margir Vestfirðingar sem muna eftir bílnum og svo eru margir sem áttu svipaða bíla á sínum tíma,“ segir Guðfinnur.
Hvað með stelpurnar, eru þær ekki spenntar fyrir bílnum?
„Þó bíllinn veki athygli hvert sem hann fer hef ég nú bara fengið hrós frá karlmönnum. Þótt stelpunum finnist bíllinn eflaust flottir þá eru þær ekki beint að láta það í ljós,“ segir Guðfinnur í léttum tón.
Vinsældir Benz-ins eru þó slíkar að hann fleiri hafa falast eftir honum eftir endurbæturnar.
„Ég hef verið að lána hann í brúðkaupsveislur til vina og vandamanna. Svo fór hann í pílagrímsferð vestur, hann er auðvitað upphaflega frá Bolungarvík. Sú ferð var farin á sjö klukkutímum eins og ökuferðin var þegar ég var krakki, með voldugum stoppum á leiðinni. En á bakaleiðinni var ég búinn að gleyma því enda er bíllinn svo kraftmikill. Þá tók þetta ekki nema hefðbundinn fimm og hálfan tíma,“ segir hann en Benzinn er sex sílindra og 185 hestöfl.
En þótt Guðfinnur kunni því vel að keyra um á Benzinum góða heldur hann sig við reglurnar og á mánudag fer bíllinn inn í skúr næsta hálfa árið. Undanfarið hefur hann haft yfir tveimur bílum að ráða en nú ber svo við að hann ætlar að vera bílllaus fram á vor.
„Já, í vetur skal það vera Strætó. Þetta eru bara sex mánuðir sem þarf að brúa og nú ætla ég að prófa að skipta á einum appelsínugulum Benz yfir í einn af þessum gulu, stóru.“